Reykjavík University
Evaluation of modified behavioral skills training for teaching sleep treatment skills to parents via telehealth
Abstract
dc:description.abstractSvefnvandamál eru algeng meðal barna með frávik í taugaþroska, svo sem röskun á einhverfurófi, þroskahömlun og ADHD (Johnson, 1996; Krakowiak et al., 2008; Polimeni et al., 2005; Spruyt & Gozal, 2011). Í ljósi þeirra neikvæðu áhrifa sem svefnvandi getur haft á heilsu og lífsgæði er mikilvægt að foreldrar barna með frávik í taugaþroska sem glíma við svefnvanda hafi aðgengi að viðeigandi og áhrifaríkum úrræðum. Tilgangur rannsóknarinnar var að meta áhrif námskeiðs fyrir foreldra sem fól í sér færniþjálfun (e. behavioral skills training) í fjarkennslu á þekkingu foreldra á umhverfisþáttum sem hafa áhrif á svefn og á framkvæmd færni sem nauðsynleg er til að veita áhrifaríka íhlutun við svefnvanda barna þeirra. Þekking foreldra á umhverfisþáttum var mæld með fyrir-og-eftir mælingu og færniþætt endurtekið punktmat (e. multiple probe across skills design) var notað til að mæla áhrif færniþjálfunar á færni foreldra. Námskeiðið jók þekkingu þátttakanda á umhverfisþáttum sem geta ýtt undir svefnvanda og hafði jákvæð áhrif á færni þeirra til að framkvæma íhlutun við svefnvanda. Frekari rannsókna er þörf til að meta meðferðartryggð foreldra á heimilum sínum og til að meta þörf fyrir frekari þjálfun og ráðgjöf. Lykilorð: svefnvandi barna, svefn, þroskafrávik, færniþjálfun, foreldraþjálfun
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Herdís Ingibjörg A. Svansdóttir 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 17Rights
- Language dc:language.iso
- en
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/39469
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/39469