Reykjavík University
Gæðastjórnunarkerfi leyfisveitenda í byggingariðnaði : hefur krafa um gæðastjórnunarkerfi haft áhrif á gæði mannvirkja?
Abstract
dc:description.abstractInnleiðing gæðastjórnunarkerfa getur verið bæði kostnaðarsöm og tímafrek aðgerð fyrir fyrirtæki og stofnanir. Tilgangur og markmið stjórnunarkerfanna ættu að vera skýr. Aðstoð við hönnun á uppbyggingu þeirra og eftirfylgni ætti einnig að vera til staðar svo innleiðingin verði sem einföldust. Stjórnunarkefi ættu að stuðla að hagræðingu, samræmingu í verkferlum og auka skilvirkni. Svo virðist sem ekki hafi verið tekið nægilegt tillit til þessara þátta við innleiðingu á gæðastjórnunarkerfum byggingarfulltrúa. Könnunin sem þessi ritgerð byggir á sýnir fram á að enn vantar töluvert upp á að byggingarfulltrúar séu með skráð, vottað og virkt gæðastjórnunarkerfi. Ástæðan er hvorki ein né einföld. Í niðurstöðunum kemur meðal annars fram að byggingarfulltrúar hafa búið við ákveðinn ómöguleika til að uppfylla lagalega skyldu sína varðandi innleiðingu gæðastjórnunarkerfis og faggildingar. Stuðningur frá hinu opinbera virðist einnig ekki hafa verið nægur. Jafnframt kemur fram að gæði í mannvirkjagerð hafa lítið sem ekkert aukist með kröfu um gæðastjórnunarkerfi byggingarfulltrúa. Mögulega er orsakasamband þarna á milli sem taka þarf til endurskoðunar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Harpa Cilia Ingólfsdóttir 1969-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/39441
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/39441