Back to results

Reykjavík University

Afbrot barna og ungmenna : refsiúrræði fyrir unga afbrotamenn

Abstract

dc:description.abstract

Afbrot barna og ungmenna er víðfemt vandamál sem sporna verður við með markvissum aðgerðum. Mikilvægt er að stuðla að þeirri þróun að samfélagið veiti einstaklingum, sem leiðast út í afbrot eða eru líklegir til þess, jákvæðan stuðning og dragi þannig úr slíkri hegðun. Í þessari ritgerð er fjallað um refsingar og önnur úrræði sem standa afbrotamönnum á aldrinum 15-21 árs til boða. Með lögfestingu Barnasáttmálans, árið 2013, voru gerðar breytingar á vistun sakhæfra barna sem dæmd eru í óskilorðsbundið fangelsi. Gerð verður grein fyrir þeim breytingum, bæði fyrir og eftir lögfestingu sáttmálans og hvernig Ísland tryggir að skilyrði c-liðar 37. gr. sáttmálans sé fullnægt. Fangelsisvist er almennt talin hafa slæm áhrif á börn og er reynt eftir bestu getu að færa þau úr því umhverfi yfir í barnaverndarumhverfið. Ekki er þörf á unglingafangelsi á Íslandi og hefur umræðan um það minnkað til muna eftir lögfestingu Barnasáttmálans. Núgildandi fyrirkomulag hefur reynst vel og eru börn aðeins vistuð í fangelsi í undantekningartilfellum. Skilorðsbundnum refsidómum og ákærufrestunum hefur fækkað til muna síðustu ár. Er það neikvæð þróun í ljósi þess að ákærufrestun er almennt talin hentugt úrræði fyrir unga afbrotamenn þar sem þeim er gefinn kostur á að taka sig á. Á sama tíma hefur veiting annarra úrræða aukist, líkt og reynslulausn og rafrænt eftirlit. Er það jákvæð þróun þar sem úrræðin brúa ákveðið bil milli fangelsisvistar og endurkomu einstaklings í samfélagið á ný. Afplánun refsinga utan fangelsa er talin vera betur til þess fallin að hafa uppbyggileg og jákvæð áhrif á börn og ungmenni en óskilorðsbundið fangelsi. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að skýrari og skilvirkari reglur þurfi um þau úrræði sem standa börnum og ungmennum til boða. Nauðsynlegt er að grípa fyrr inn í þegar börn og ungmenni sýna frávik í hegðun sinni. Erfitt er að grípa inn í aðstæður þegar barn er langt leitt í afbrotum og komið í algert öngstræti.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hildur Ýr Þórðardóttir 1996-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/38668
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/38668

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hildur Ýr Þórðardóttir 1996-. Afbrot barna og ungmenna : refsiúrræði fyrir unga afbrotamenn. 2021. http://hdl.handle.net/1946/38668