Reykjavík University
Réttindi og skyldur greiðsluvirkjenda og reikningsupplýsingaþjónustuveitanda
Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi ber heitið „Réttindi og skyldur greiðsluvirkjanda og reikningsupplýsinga-þjónustuveitanda“ og er skrifuð á sviði innlends greiðsluþjónusturéttar. Henni er ætlað að svara því hvaða réttindi og skyldur verða lögð á greiðsluvirkjendur og reikningsupplýsingaþjónustuveitendur á grundvelli frumvarps til laga um greiðsluþjónustu, laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 140/2018 og hvaða áhrif munu þessir aðilar hafa á almennan bankamarkað hér á landi. Höfundur leitast við að svara rannsóknarspurningunni á grundvelli legal dogmatics (e. de lege lata) eða hinni fræðilegu lagalegu aðferð með hliðsjón af lögum, reglugerðum, tilskipunum, leiðbeinandi reglum og fræðiritum. Útgangspunktur ritgerðarinnar er að miklar kröfur eru lagðar á hinar nýju aðila en einkum á greiðsluvirkjendur. Öryggi og persónuvernd er gert hátt undir höfði í frumvarpinu en markmið frumvarps til laga um greiðsluþjónustu er meðal annars að gera rafræn greiðsluviðskipti örugg og stuðla að skilvirku og stöðugu eftirliti eftirlitsaðila. Kröfur laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka til greiðsluvirkjanda og reikningsupplýsingaþjónustuveitenda eru ekki í samræmi við það sem EBA lagði upp þar sem reikningsupplýsingaþjónustuveitendur falla ekki undir gildissvið peningaþvættislöggjafarinnar þar sem þeir eru ekki skilgreinindir sem greiðslustofnun í frumvarpi til laga um greiðsluþjónustu. Verði frumvarp til laga um greiðsluþjónustu samþykkt óbreytt eru það einungis greiðsluvirkjendur sem bætast í hóp tilkynningaskyldra aðila. Tilkoma þessa nýju aðila mun geta haft mikil áhrif á bankaþjónustu eins og við þekkjum hana í dag en frumvarpið opnar á áður óþekkta samkeppni á bankamarkaðinum. Bankarnir hafa þrátt fyrir það mikið forskot á hina nýju greiðsluþjónustuveitendur í ljósi þess að þeir hafa nú þegar traust viðskiptavina, fjármagn og aðgengi að dreifingarleiðum. Þrátt fyrir það munu þeir þurfa að aðlaga sig að breyttum og bættum tímum á greiðsluþjónustumarkaði í ljósi þess að greiðsluvirkjendur og reikningsupplýsingaþjónustuveitendur munu setja mikinn þrýsting á hið hefðbundna viðskiptalíkan bankanna og ógna forskoti þeirra.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Guðný Vilmundardóttir 1994-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/38656
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/38656