Back to results

Reykjavík University

Heimilisofbeldi : réttarvernd barna

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á þá réttarstöðu sem þolendur heimilisofbeldis njóta, einkum í þeim tilfellum þar sem brot, beint eða óbeint, beinist gegn börnum. Aðdragandi lögfestingar sérrefsiákvæðisins verður skoðaður og gerður samanburður við Norðurlöndin, einkum Svíþjóð, Noreg og Danmörk, á kynferðisbrotaákvæðum og sérrefsiákvæðum um heimilisofbeldi. Fjallað verður um beitingu íslenska heimilisofbeldisákvæðisins með vísan til lagaskilareglna 2. gr. almennra hegningarlaga sem og samspil almennra hegningarlaga við önnur ákvæði sömu laga, við sérrefsilög og við stjórnarskrárvarin réttindi um friðhelgi einkalífs. Gerð verður grein fyrir birtingarmyndum heimilisofbeldis og fjallað um gildissvið 218. gr. b. almennra hegningarlaga. Vikið verður að réttarvernd barna þar sem fjallað verður um þær lagabreytingar sem hafa náð fram að ganga hér á landi og fullgildingu alþjóðasáttmála sem stuðla með einum eða öðrum hætti að aukinni vernd barna. Í lokin verður fjallað um aðkomu lögreglu, barnaverndar og félagsþjónustu að heimilisofbeldi og síðan meðferð máls hjá ákæruvaldi og dómstólum. Helstu niðurstöður eru að með 218. gr. b. almennra hegningarlaga hefur í fyrsta skipti verið sett fram sérstök skilgreining á heimilisofbeldi og nær sú skilgreining jafnframt til barna. Er barn því talið verða fyrir andlegu ofbeldi þegar verknaður beinist gegn einstaklingi nákomnum því. Samkvæmt lagaskilareglu almennra hegningarlaga og með vísan til dómaframkvæmdar getur verknaður sem átti sér stað fyrir gildistöku ákvæðisins varðað við sérrefsiákvæðið ef verknaðurinn varðaði við önnur refsiákvæði fyrir gildistöku þess. Jafnframt ber dómaframkvæmd þess merki að mörkuð hafa verið skil á því hverjir njóta réttarverndar á grundvelli heimilisofbeldisákvæðisins sem og hvaða brot telst stórfellt í skilningi 2. mgr. ákvæðisins. Ekki má þó álíta ákvæðið fullmótað. Með það að markmiði að auka réttarvernd barna hafa lagabálkar og tiltekin ákvæði verið lögfest, alþjóðasáttmálar hafa verið fullgildir og eldri ákvæði aðlöguð að þeim. Réttarvernd hefur því verið aukin og við meðferð mála eru hagsmunir barna einatt hafðir að leiðarljósi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Dagný Alma Jónasdóttir 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/36016
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/36016

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Dagný Alma Jónasdóttir 1993-. Heimilisofbeldi : réttarvernd barna. 2020. http://hdl.handle.net/1946/36016