Reykjavík University
Örorkulífeyrir frá lífeyrissjóðum : reglur og aðferðir við ákvörðun örorkulífeyris
Abstract
dc:description.abstractTilgangur og markmið þessarar ritgerðar er að varpa sem skýrustu ljósi á reglur sem gilda um örorkulífeyri lífeyrissjóða. Þótt ritgerðinni sé ætlað að fjalla um reglur um örorkulífeyri snýr þungamiðja hennar að örorkumati en markmið örorkumats er að ákvarða hlutfall orkutaps. Í ljósi þess að ríkið skyldar alla sem starfa á vinnumarkaði til þátttöku í samtryggingu lífeyrisréttinda er mikilvægt að löggjafinn sjái til þess að um réttarstöðu sjóðfélaga gildi regluverk þar sem sjóðfélögum eru tryggð sem jöfnust réttindi. Í þessari ritgerð verður meðal annars leitast við að greina hvort sú er raunin. Í því sambandi verður leitast við að svara hvort ástæða sé til að ætla að gildandi regluverk tryggi ekki nægjanlega vel jafnræði milli sjóðfélaga og hvort aukið gagnsæi geti betur tryggt að málefni sjóðfélaga séu meðhöndluð með sanngjörnum og sambærilegum hætti. Rannsókn höfundar á örorkumatinu leiddi í ljós að reglur sem um örorkumatið gilda séu ágætlega til þess fallnar að meta orkutap. Sumar reglnanna sem um matið gilda byggja á reynslu og venjum trúnaðarlækna sem eru að litlu leyti skjalfestar. Rannsóknin leiddi í ljós að reglur um örorkumat í samþykktum lífeyrissjóða endurspegla ekki að öllu leyti framkvæmd örorkumats. Draga má þá ályktun af umfjöllun ritgerðarinnar að lífeyrissjóðir hafi ekki að fullu fullnægt þeirri skyldu, sem leiðir af ákvæði 7. mgr. 15. gr. laga nr. 129/1997, með reglum í samþykktum sjóðanna um örorkumat. Þá leiddi rannsóknin í ljós að ósamræmi er á milli lífeyrissjóða varðandi það hvort viðmiðunartekjur sjóðfélaga þróist í samræmi við breytingar sem verða á launavísitölu eða vísitölu neysluverðs. Sú framkvæmd sem nú er viðhöfð verður ekki talin stuðla að jafnræði meðal sjóðfélaga lífeyrissjóða og þörf er á því að lífeyrissjóðir samræmi reglur um viðmiðunartekjur þannig að þær taki breytingum í samræmi við sömu vísitöluna.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Rakel Lind Hauksdóttir 1982-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/34770
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/34770