Abstract
dc:description.abstractHúsnæðismarkaðurinn á Íslandi einkennist af stigvaxandi verðlagsþróun og framboðsskorti af fasteignum, þá helst minna og ódýrara íbúðarhúsnæði á viðráðanlegu verði fyrir ungt og efnaminna fólk. Orsök þessa vanda má að hluta til rekja til efnahagshrunsins sem átti sér stað 2008, þar sem hægði á uppbyggingu húsnæða eftir hrunið. Mikil fólksfjölgun hefur einnig átt sér stað frá árinu 2010 sem eykur eftirspurn fólks eftir húsnæði. Í dag er þróunin sú að ungt fólk býr lengur í húsakynnum foreldra sinna, en aldurinn fer stighækkandi milli ára. Ástæður þess eru þær að ungt fólk sækir nám í lengri tíma heldur en fyrirrennarar sínir og að erfiðara er fyrir ungt fólk í dag að eiga fyrir útborgun í íbúð, og komast í gegnum greiðslumat fyrir húsnæðisláni. Neyslumynstur hefur breyst í íslensku samfélagi, sem hefur gert ungu fólki erfitt með að leggja pening í sparnað. Farið verður yfir samanburð milli Norðurlandanna á þróun húsnæðismála og hvaða lærdóm Ísland getur dregið af nágrannalöndunum. Ritgerð þessi mun varpa ljósi á viðhorf ungs fólks á húsnæðismarkaðinn á Íslandi og rýna í það hvort það sé jafn erfitt að kaupa húsnæði og álit ungmenna gerir ráð fyrir. Þá verður jafnframt farið yfir hvaða úrræði eru í boði, og hvað hefur verið gert áður.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Eva Björg Bjarnadóttir 1995-
- Hlynur Ingi Snorrason 1996-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/33824
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/33824