Reykjavík University
Staðgreiðsla opinberra gjalda - ábyrgð launagreiðanda : keðjuábyrgð
Abstract
dc:description.abstractMeð til komu keðjuábyrgðar launa á íslenskan vinnumarkað hefur ábyrgð launa, sem alla jafna liggur hjá vinnuveitanda sem er í samningssambandi við launþega, verið færð á notendafyrirtæki sem ekki er í beinu samningssambandi við launþega. Upptaka keðjuábyrgðar launa á rætur sínar að rekja til tilskipunar Evrópusambandsins 2014/67/EU en þar var heimildarákvæði um keðjuábyrgð launa og réttinda ákveðinna starfsmanna í afmarkaðri atvinnugrein tryggð. Við innleiðingu tilskipunar Evrópusambandsins í íslenskan rétt var kveðið á um víðtækari ábyrgð heldur en tilskipunin segir til um. Um er að ræða nýjung á íslenskum vinnumarkaði en víðtækt samráð var haft milli stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins við þær lagabreytingar sem voru gerðar sumarið 2018. Fyrir liggur frumvarp til breytinga á lögum um opinber innkaup en í frumvarpinu er gert ráð fyrir heimild til þess að krefjast keðjuábyrgðar launa starfsmanna vegna verksamninga við hið opinbera. Vegna ákvæða í lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda kann hins vegar sá sem gengst undir keðjuábyrgð einnig að vera skylt að halda eftir staðgreiðslu opinberra gjalda og skila til ríkissjóðs. Markmið ritgerðarinnar er að varpa ljósi á ábyrgð keðjuábyrgðaraðila eða notendafyrirtækis gagnvart hinu opinbera þegar kemur að staðgreiðslu opinberra gjalda vegna launagreiðslna. Í ritgerðinni er leitast við að svara því hvernig keðjuábyrgð tengist skattarétti og hvort skilaskylda staðgreiðslu launagreiðanda hvíli á þeim aðila sem vegna keðjuábyrgðar er látin bera ábyrgð á launagreiðslum þess launagreiðanda sem hann gengst í ábyrgð fyrir? Í fyrri hluta ritgerðarinnar er fjallað um skattarétt og skatteftirlit en farið verður sérstaklega yfir þær heimildir sem skattyfirvöld hafa til þess að meta samninga milli skattaðila í skattalegu tilliti og í síðari hlutanum er fjallað um átak stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins gegn félagslegum undirboðum, skattsvikum, skattundanskotum og kennitöluflakki með upptöku keðjuábyrgðar í íslenskan rétt. Meginniðurstaða ritgerðarinnar er að sá aðili sem vegna keðjuábyrgðar er látin gangast undir ábyrgð launa ber skyldur launagreiðanda og sem slíkum skal hann halda eftir staðgreiðslu og skila til ríkissjóðs.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Svavar Daðason 1984-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/33162
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/33162