Reykjavík University
Reglan um hraða málsmeðferð í sakamálaréttarfari : Tafir á meðferð sakamáls hjá lögreglu og ákæruvaldi
Abstract
dc:description.abstractÍ ritgerðinni verður fjallað um meginregluna um hraða málsmeðferð, sbr. 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og 1. mgr. 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu sbr. 62/1994. Reglan er ein af grundvallarreglum réttarfars og hefur tengsl við mörg önnur réttarsvið. Í ritgerðinni verður lögð áhersla á að fjalla um regluna í sakamálaréttarfari og þær málshraðareglur sem gilda í tengslum við rannsókn og meðferð sakamála sem finna má í lögum um meðferð sakamála nr. 88/2008. Fjallað verður um sjónarmið Mannréttindadómstóls Evrópu sem lögð eru til grundvallar við mat á því hvort tafir á málsmeðferð brjóti í bága við meginregluna um hraða málsmeðferð, sbr. 1. mgr. 70. gr. stjskr. og 1. mgr. 6. gr. MSE. Í ritgerðinni verður skoðuð dómaframkvæmd Hæstaréttar og héraðsdóms í málum þar sem tafir hafa orðið á málsmeðferð í sakamálum. Í seinni hluta ritgerðar verður fjallað um margvíslegar afleiðingar brota gegn málshraðareglunni með hliðsjón af dómaframkvæmd. Að því loknu verður fjallað um fyrirkomulag lögreglu og ákæruvalds á Íslandi við meðferð sakamála og tengsl rannsóknaráætlunar lögreglu við málshraðaregluna. Þannig verður reynt að varpa ljósi á það hvers vegna mál tefjast hjá lögreglu og ákæruvaldi, eins og raun ber vitni, að því er virðist án nokkurra skýringa. Í framhaldi af því verður fjallað um úrræði sem höfundur telur vænleg til úrbóta fyrir lögreglu og ákæruvald til að koma í veg fyrir að mál tefjist. Í lok ritgerðarinnar verða umfjöllunarefni og niðurstöður höfundar dregnar saman.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Þóra Kristín Sigurðardóttir 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/31297
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/31297