Back to results

Reykjavík University

Spáð fyrir um tilfinningar spilara út frá hegðun þeirra í tölvuleik

Abstract

dc:description.abstract

Gagnvirk sögukerfi í tölvuleikjum notast oft við líkan af spilurum til þess að aðlaga söguþráðinn að áhugasviði þeirra, persónuleika eða færni. Hegðun spilara í tölvuleik er oft notuð sem vísir í gerð spilaralíkansins en tilfinningar þeirra geta einnig veitt gagnlegar upplýsingar. Fólki finnst of erfitt að lýsa tilfinningum sínum og þess vegna stefnum við að því að mæla þær með lífeðlisfræðilegri svörun spilaranna. Þar sem spilarar eru yfirleitt ekki búnir slíkum tækjum í sínu náttúrulega leikjaumhverfi miðum við að því að gera þau óþörf með því að þróa aðferð sem spáir fyrir um tilfinningar spilara út frá hegðun þeirra í tölvuleik. Aðferðin felur í sér notendarannsókn þar sem við rekjum aðgerðir spilaranna og mælum lífeðlisfræðilega svörun þeirra við spilun tölvuleiks. Við reiknum síðan gildi þriggja tilfinningalegra eiginleika (örvun, löð og styrkleika) og þjálfum nokkur vélnámsreiknirit til þess að spá fyrir um gildin út frá hegðun spilaranna. Niðurstöður okkar sýna að aðferðin okkar getur spáð fyrir um tilfinningalegra eiginleika spilara út frá hegðun þeirra í tölvuleik með meiri nákvæmni heldur en niðurstöður samræmdrar handahópsspár.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ingibjörg Ósk Jónsdóttir 1992-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
en

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/29741
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/29741

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ingibjörg Ósk Jónsdóttir 1992-. Spáð fyrir um tilfinningar spilara út frá hegðun þeirra í tölvuleik. 2018. http://hdl.handle.net/1946/29741