Back to results

Reykjavík University

Réttarstaða sakhæfra geðveikra fanga: Lög um fullnustu refsinga nr. 15/2016

Abstract

dc:description.abstract

Þessi ritgerð fjallar um réttarstöðu sakhæfra geðveikra fanga samkvæmt lögum um fullnustu refsinga nr. 15/2016. Markmið ritgerðarinnar er að rannsaka hvort sakhæfum geðveikum föngum sé tryggð sú réttarvernd sem lögin mæla fyrir um, einkum hvað varðar viðeigandi geðheilbrigðisþjónustu og vistunarúrræði. Í þeirri viðleitni er kannað hvernig mati á geðrænu sakhæfi afbrotamanna er háttað við úrlausn sakamála. Jafnframt er skoðað til hvers dómstólar líta við mat á því hvort refsing verði talin geta borið árangur. Farið er yfir forsögu og tilurð laga um fullnustu refsinga. Ítarlega er farið yfir efnislegt inntak einstakra ákvæða, sem samkvæmt lögskýringargögnum er ætlað að tryggja föngum bæði almenn mannréttindi og sérstök réttindi er fangar njóta sökum stöðu sinnar sem frelsissviptra manna. Sjónum er beint að markmiðum laganna, einkum betrunarhugtakinu sem var fyrst lögfest með lögum nr. 15/2016. Einnig er hugtakið betrun skilgreint. Til að varpa ljósi á það hvort framkvæmd refsifullnustu sé í samræmi við inntak og markmið laganna eru fangelsismál á Íslandi rannsökuð með sérstöku tilliti til aðbúnaðar geðveikra fanga í afplánunarfangelsum ríkisins. Að sama skapi eru könnuð ákvæði annarra íslenskra laga er varða réttarstöðu þeirra. Leitast er við að svara því hvort íslenska ríkið uppfylli alþjóðlegar skuldbindingar sínar er varða mannréttindi geðveikra afplánunarfanga. Í því tilliti er fjallað um helstu alþjóðasamninga á sviði mannréttinda sem Ísland er aðili að og gilda að íslenskum rétti. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að sakhæfir geðveikir fangar sem afplána í fangelsum ríkisins njóta ekki þeirrar réttarverndar sem ákvæði laga um fullnustu refsinga mæla fyrir um. Ekki er veitt viðeigandi geðheilbrigðisþjónustu innan fangelsa þrátt fyrir skýrar skyldur fangelsis- og heilbrigðisyfirvalda þess efnis. Enn fremur hafa fangar ekki aðgang að geðdeildum landsins. Þá er dregin sú ályktun að íslenska ríkið uppfyllir ekki alþjóðlegar skyldur sínar um mannréttindavernd sakhæfra geðveikra fanga með fullnægjandi hætti.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Tinna Björg Friðþórsdóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/29602
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/29602

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Tinna Björg Friðþórsdóttir 1989-. Réttarstaða sakhæfra geðveikra fanga: Lög um fullnustu refsinga nr. 15/2016. 2018. http://hdl.handle.net/1946/29602