Back to results

Reykjavík University

Áhrif þjónustuvera símafyrirtækja á ánægju viðskiptavina

Abstract

dc:description.abstract

Margar rannsóknir hafa verið gerðar á ánægju viðskiptavina og hvað hefur áhrif á hana en þó hefur hún aldrei verið rannsökuð í tengslum við þjónustuver símafyrirtækja. Ánægja viðskiptavina er skilgreint sem heildaránægja sem viðskiptavinur finnur og rekja má til þess að langanir, væntingar og þarfir hans eru uppfylltar. Samkvæmt fyrri rannsóknum um ánægju viðskiptavina eru margir þættir sem hafa áhrif á hana. Þar má meðal annars nefna ímynd, verð, viðhorf starfsmanna og gæði þjónustu. Þjónustuver hafa möguleika á að stjórna að miklu leyti viðhorfum starfsmanna og gæðum þjónustu. Rannsókn á þjónustuverum íslensku símafyrirtækjanna var viðfangsefni þessarar ritgerðar. Skoðaðar voru fyrri rannsóknir um símamarkaðinn og má þar meðal annars nefna Íslensku ánægjuvogina og tiltækar upplýsingar um markaðshlutdeild fyrirtækjanna. Samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni eru viðskiptavinir Nova áberandi ánægðastir og samkvæmt upplýsingum um markaðshlutdeild er Nova markaðsráðandi á farsímamarkaði. Skoðað var hvort þjónustuver hafi áhrif á ánægju viðskiptavina símafyrirtækja og þá með hvaða hætti. Einnig var skoðað hvort ánægja hefði svo áhrif á árangur fyrirtækjanna. Niðurstaðan var að þjónustuver hafa mikil áhrif á ánægju viðskiptavina og margir áhrifaþættir hafa svo áhrif á hversu góð þjónustan er. Þar má nefna góða úrlausn vandamála, stuttan biðtíma og gott viðmót starfsmanna. Einnig sést það vel að ánægja viðskiptavina hefur áhrif á árangur fyrirtækja þar sem markaðshlutdeild þeirra fyrirtækja sem hafa ánægða viðskiptavini hefur aukist síðustu ár.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Bryndís Hjörleifsdóttir 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25364
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25364

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Bryndís Hjörleifsdóttir 1993-. Áhrif þjónustuvera símafyrirtækja á ánægju viðskiptavina. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25364