Reykjavík University
Mannauðinn í öndvegi - Innleiðing mannauðsstjórnunar í sjávarútvegsfyrirtækið Stakkavík ehf.
Abstract
dc:description.abstractBreytingar í rekstrarumhverfi fyrirtækja hafa kallað á breytingar í mannauðsmálum þeirra. Mannauðsstjórnun eru allar þær aðgerðir sem snúa að starfsfólki fyrirtækja en hún hefur það að markmiði að hámarka starfsánægju og frammistöðu mannauðs og um leið skilvirkni fyrirtækisins. Innleiðing mannauðsstefnu er mikilvæg fyrir fyrirtæki, en til þess að slíkt skili sem mestum árangri þarf hún að vera í takt við heildarstefnu fyrirtækisins. Þetta verkefni fjallar um átta helstu aðgerðir mannauðsstjórnunar; starfsgreiningu og hönnun starfa, áætlanagerð í mannauðsmálum, ráðningar, starfsmannaval, þjálfun og þróun, laun og starfskjör, frammistöðustjórnun og starfsmannatengsl. Fræðileg umfjöllun er um hverja aðgerð fyrir sig, ásamt umræðum um stöðu sjávarútvegsfyrirtækisins Stakkavíkur ehf. í hverri fyrir sig. Einnig eru ráðleggingar um hvað Stakkavík ehf. getur gert betur á hverju sviði. Stakkavík ehf. er útgerð og ferskfiskvinnsla í Grindavík. Fyrirtækið var stofnað af Ólafi Gamalíelssyni og sonum hans, Hermanni og Gesti, ásamt eiginkonu Hermanns og tengdaföður, árið 1988. Í dag, 28 árum seinna, starfa um 100 manns í fyrirtækinu, til sjós og lands. Markmiðið með þessu verkefni er að veita Stakkavík ehf. greiningu og ráðgjöf varðandi mannauðsmál í fyrirtækinu, sem það getur nýtt sem drög að mannauðsstefnu. Notfæri Stakkavík ehf. sér þessi drög, geta þau veitt þeim samkeppnisforskot á markaði.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ásta Katrín Gestsdóttir 1992-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 2Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/25345
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/25345