Reykjavík University
Þróun laga um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa : framkvæmd fyrirtækjasölu
Abstract
dc:description.abstractÞróun laga um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa Framkvæmd fyrirtækjasölu Í þessari ritgerðar er farið yfir þróun laga um fasteignasölu frá því fyrstu lög um sölu fasteigna voru sett árið 1938 og verður sjónum sérstaklega beint að markmiðum og vilji löggjafans með setningu laganna. Fyrstu lög um sölu fasteigna voru sett með lögum nr. 47/1938. Hafa lögin tekið miklum breytingum í gegnum tíðina samferða breyttu umhverfi í viðskiptalífinu. Árið 1997 kom nýtt ákvæði inn í 1. gr. laga nr. 54/1997 um fasteigna-, fyrirtækja- og skipasölu um að löggiltir fasteignasalar hefðu einkarétt til sölu fyrirtækja. Í júlí 2015 voru sett ný heildarlög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Nokkrar grundvallarbreyting áttu sér stað við gildistöku núgildandi laga og má þar helst nefna afnám einkaréttar fasteignasala til sölu fyrirtækja. Í kjölfarið er hverjum sem er heimilt að annast milligöngu um sölu fyrirtækja. Aðrar breytingar sem finna má í núgildandi lögum nr. 70/2015 fjalla meðal annars um verktöku í fasteignasölu og skyldur fasteignasala til að sinna störfum sínum sjálfir. Í seinni hluta ritgerðarinnar verður sjónum beint að fyrirtækjasölu á Íslandi og framkvæmd hennar. Þá verða skoðuð þau sjónarmið sem höfð voru að leiðarljósi þegar fasteignasalar fengu einkarétt til sölu fyrirtækja og einnig hvers vegna ákveðið var að afnema einakaréttinn í núgildandi lögum. Farið verður yfir framkvæmd fyrirtækjasölu til að betur sé hægt að átta sig á því hvort nauðsynlegt er að ákveðnar reglur gildi yfir sölu fyrirtækja. Í niðurstöðum kemur fram að markmið löggjafans varðandi sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa hafi ávallt verið mjög skýrt. Leitast hefur verið við að auka neytendavernd og eftirlit með störfum fasteignasala en lögin hafa þó ekki verið nægilega skýr hingað til og þá hefur eftirlitsnefnd Félags fasteignasala brugðist skyldum sínum. Höfundur er þeirrar skoðunar að ekki sé rétt að fasteignasalar hafi einkarétt til sölu fyrirtækja en þó sé nauðsynlegt að reglur gildi yfir fyrirtækjasölu, þá sérstaklega hvað varðar sölu minni fyrirtækja til að vernda neytendur.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Þóra Sif Friðriksdóttir 1987-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/23815
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/23815