Back to results

Reykjavík University

Sérfræðingur viðfangsefnis eða verkefnastjórnunar : hversu mikilvæg er fagþekking verkefnastjóra á viðfangssviði verkefnis?

Abstract

dc:description.abstract

Alþjóðasamtök verkefnastjórnunarfélaga (IPMA) gerir ekki kröfur um að verkefnastjóri hafi fagþekkingu á viðfangssviði verkefnis þegar hæfni hans er metin eftir hugtakalykli sambandsins. Hér var leitast við að svara spurningunni um það hversu mikilvæg fagþekking verkefnastjóra er á viðfangssviði verkefnis sem hann stýrir. Um var að ræða eigindlega rannsókn og voru ályktanir dregnar af viðtölum við verkefnastjóra sem stýra verkefnum utan síns fagsviðs. Helstu niðurstöður gáfu til kynna að góð kunnátta í aðferðafræði verkefnastjórnunar og hæfni verkefnastjórans í mannlegum samskiptum skiptu meira máli en fagþekking hans á viðfangssviði verkefnis. Fram kom að hlutverk og verkaskipting verkefnastjóranna og annarra aðila teymisins var skýr. Ennfremur að verkefnastjórarnir sem rætt var við höfðu almennt jákvæða upplifun af því að stýra verkefnum utan síns fagsviðs. Af þessu má draga þá ályktun að verkefnastjóri með færni í stjórnun verkefna og góða samskiptahæfni geti stýrt verkefnum utan síns fagsviðs ef hann hefur sér til fulltyngis sérfræðinga með fagþekkingu og er sjálfur áhugasamur og námfús. Efnisorð: Verkefnastjórnun, fagþekking, eigindlegar rannsóknir

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Helen Símonardóttir 1972-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22706
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22706

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Helen Símonardóttir 1972-. Sérfræðingur viðfangsefnis eða verkefnastjórnunar : hversu mikilvæg er fagþekking verkefnastjóra á viðfangssviði verkefnis?. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22706