Back to results

Reykjavík University

Boeing 757-200 interior simulation for cabin air quality analysis

Abstract

dc:description.abstract

Með aukinni samkeppni í flugiðnaði hefur Icelandair beint sjónum sínum enn frekar að velferð farþega sinna auk þess sem þeir hafa uppfært bæði sætin sem og afþreyingarkerfin í flestum ef ekki öllum vélunum sínum. Þrátt fyrir það hafakvartanir borist frá bæði farþegum sem og áhöfn vegna hita í farþegarými á meðan á flugi stendur. Til að Icelandair haldi samkeppnisforskoti sínu er mjög mikilvægt að finna út úr því hvort þessar kvartanir eigi sér stoð í raunveruleikanum, og hvort raunhæfar lausnir séu til staðar til að bregðast við þeim. Lokaverkefni þetta gengur út á að skoða hvort hægt sé að koma upp módeli fyrir loftræstikerfi vélanna þannig að stöðluð mæling um borð í einhverri einni vél, gæti sagt fyrir um hvort loftræstikerfi mældu vélarinnar sé að vinna eins og til er ætlast samanborið við módelið. Til að búa til módelið var ákveðið að teikna vélina upp í þrívíddarforritinu Autodesk Inventor Professional sem svo var flutt inn í Autodesk Simulation CFD til að herma raunmælingarnar. Í byrjun var vélin öll teiknuð upp eftir miðju hennar en seinna var ákveðið að minnka það niður í lítinn hluta hennar vegna þess mikla tíma sem fór í að leysa hermunina. Mælingar voru framkvæmdar um borð í einni flugvél Icelandair á Keflavíkurflugvelli þann 16.apríl 2015 í því skyni að koma upp slíku módeli. Mælingunum var skipt upp í sjö tímabil sem réðust af upphafsgildi tímabils þar til kerfið náði jafnvægi aftur áður en stillingu lofthitans var aftur breytt. Mældum og hermdum gildum var þá komið yfir í Matlab til að áætla yfirfærslufall tímabilanna og þau svo borin saman með þrepsvörunargrafi þeirra. Þegar gröfin voru lögð saman í eitt sýndu þau að hermunin var mjög nálægt mældu gildunum á hverju tímabili fyrir sig. Til að koma upp módeli til að skera úr um hvort kerfi einhverrar einnar vélar sem valin væri af handahófi sé innan marka þess sem eðlilegt getur talist þarf hins vegar að taka mælingar um borð í fleiri en einni vél eins og gert var í þessu tilfelli. Niðurstöðurnar benda hins vegar til þess að það sé fýsilegt að koma upp svona módeli til að geta á einfaldan hátt gengið úr skugga um hvort kerfi einhverrar einnar vélar bregðist við á eðlilegan máta samanborið við módelið og þar með hvort hún sé innan marka þess sem aðrar sambærilegar vélar sýna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigurður Ingi Einarsson 1971-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 11

Rights

Language dc:language.iso
en

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22340
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22340

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigurður Ingi Einarsson 1971-. Boeing 757-200 interior simulation for cabin air quality analysis. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22340