Back to results

Reykjavík University

Er hægt að nýta Negotek Preparation Planner (NPP) Gavin Kennedys sem aðferð við að skilgreina umfang verkefna?

Abstract

dc:description.abstract

Mikið getur legið undir þegar viðskiptaverkefni og umfang verkefna er skilgreint. Ef umræður um þau eru óskilvirkar og ónákvæmar getur það auðveldlega komið niður á verkefnunum og eða komið í veg fyrir að verkefni verði. Í ljósi þessa virðist mikil áhætta fólgin í samskiptum á milli sérfræðinga. Í þessari grein er spurt hvernig klassísk samningaviðræðuaðferð getur hjálpað við að skilgreina umfang verkefna með vel útfærðum viðræðum á milli aðila. Greinin hefst á þeirri tilgátu að umfang allra verkefna megi skilgreina á háþróaðan hátt með “Negotek Preparation Planner” sem er velþekkt aðferð sem Gavin Kennedy´s, sem er prófessor við Heriot-Watt Edinburgh Business School, þróaði. Aðferðin er síðan sett fram örlítið uppfærð og með breyttu sniði. Í fræðilegri umfjöllun er farið yfir kenningar um hvernig best er að framkvæma samningaviðræður sem draga eiga fram markmið, áhuga og þarfir annarrar persónu. Síðan er umræðuaðferðinni stillt upp, hún skilgreind og notkun hennar útskýrð. Til þess að staðfesta aðferðina og prufa hana í raunverulegu umhverfi var aðferðin kynnt fjórum sérfræðingum og verkefnastjórum og þeir fengnir til þess að reyna hana við raunverulega aðstæður í samskiptum við innri eða ytri viðskiptavini. Í niðurstöðu og umræðu er fjallað um hvað gekk vel og hvað ekki og settar fram úrbætur á aðferðinni til samræmis við þær prófanir sem fram fóru.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ívar Logi Sigurbergsson Gröndal 1974-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/12949
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/12949

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ívar Logi Sigurbergsson Gröndal 1974-. Er hægt að nýta Negotek Preparation Planner (NPP) Gavin Kennedys sem aðferð við að skilgreina umfang verkefna?. 2012. http://hdl.handle.net/1946/12949