Back to results

Hólar University College

Vöruþróun í dreifbýlisferðaþjónustu : möguleikar hefðbundinnar íslenskrar mysu

Abstract

dc:description.abstract

Töluvert magn af hefðbundinni íslenskri mysu fellur til við skyrgerð. Megnið af þeirri mysu er ónýtt. Skyr hefur verið vinsælt hjá erlendum ferðamönnum og vinsældir þess náð langt út fyrir landsteinana en mysan hefur ekki fengið eins mikla athygli. Mysan gegndi stóru hlutverki hér á árum áður við varðveislu matvæla í ferli sem er kallað súrsun. Meginmarkmið og tilgangur þessarar rannsóknar er að komast að því hvort og hvernig hægt sé að nýta mysuna til vöruþróunar í dreifbýlisferðaþjónustu. Það er flókið að hanna matartengda minjagripi úr mjólkurvörum með það í huga að ferðamaðurinn geti tekið vöruna með sér heim, þar sem mjólkurvörur eru viðkvæm matvara. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að fyrir smáframleiðslu er erfitt að framleiða matvöru til að ferðast með heim sem minjagrip en ef mysan er notuð inni á veitingastað eða bar þá er hægt að njóta vörunnar staðbundið. Einnig er hægt að vinna mysuna í annað en matvöru eins og t.d sápur og þá er komin vara sem er auðvelt að flytja milli staða og geymist vel. Lykilorð: Matarferðaþjónusta í dreifbýli, mysa, frumkvöðlastarfsemi, vöruþróun, sjálfbærni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Linda Dögg Snæbjörnsdóttir 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/44985
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/44985

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Linda Dögg Snæbjörnsdóttir 1993-. Vöruþróun í dreifbýlisferðaþjónustu : möguleikar hefðbundinnar íslenskrar mysu. 2023. http://hdl.handle.net/1946/44985