Back to results

Hólar University College

Starfsmannavelta í íslenskri ferðaþjónustu : ávinningur þess að hlúa vel að starfsfólki

Abstract

dc:description.abstract

Starfsmannavelta er talin vera eitt af því sem einkennir ferðaþjónustu. Mannauður ferðaþjónustufyrirtækja er ein mikilvægasta auðlind fyrirtækjanna sem nauðsynlegt er að huga að, þar sem það getur leitt til fjárhagslegs ávinnings fyrir fyrirtækin. Í skýrslunni sem hér um ræðir er greint frá verknámi skýrsluhöfundar á Hótel Langaholti sem staðsett er á sunnanverðu Snæfellsnesi. Viðfangsefnið á verknámsstað snéri að móttöku og þjálfun nýliða hjá fyrirtækinu. Útbúinn var gátlisti sem hugsaður er fyrir eftirfylgni nýrra starfsmanna hjá fyrirtækinu. Ásamt því sem fyrsta uppkast var búið til af kennsluhandbók, sem hugsuð er fyrir stjórnendur fyrirtækisins þegar kemur að kennslu og þjálfun nýliða. Í verknáminu var rannsóknarspurning skýrslunnar jafnframt mótuð og er hún eftirfarandi: Hvaða áhrif getur móttökuferli nýliða og starfsánægja á vinnustað haft á starfsmannaveltu ferðaþjónustufyrirtækja? Til að svara spurningunni var unninn fræðilegur kafli meðal annars um starfsmannaveltu, móttökuferli nýliða og starfsánægju á vinnustað. Í ljós kom að móttökuferli nýliða og starfsánægja geta hvort um sig haft áhrif á starfsmannaveltu ferðaþjónustufyrirtækja. Lykilorð: Ferðaþjónusta, mannauðsstjórnun, nýliðamóttaka, starfsánægja, starfsmannavelta.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Auður Lóa Gunnarsdóttir 1996-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/40430
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/40430

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Auður Lóa Gunnarsdóttir 1996-. Starfsmannavelta í íslenskri ferðaþjónustu : ávinningur þess að hlúa vel að starfsfólki. 2022. http://hdl.handle.net/1946/40430