Back to results

Hólar University College

Hótelrekstur í Dalabyggð : er sjálfbærni höfð að leiðarljósi ?

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er fjallað um sjálfbærni og hin mörgu og mismunandi afbrigði af henni. Sjálfbærni byggist á þeirri hugmyndafræði að nýta það sem við þurfum en gæta um leið að því að nýta ekki of mikið og skilja nægilega mikið eftir fyrir komandi kynslóðir. Rauði þráðurinn er að hvetja til sjálfbærni í rekstri ferðaþjónustu á Íslandi og benda á kosti sem fylgja slíkum rekstri. Aðaláhersla sjálfbærni hefur verið á ferðaþjónustu fyrirtæki sem starfa úti í náttúrunni en höfundur valdi að kanna fyrirkomulag hótelrekstrar í Dalabyggð og athuga hvort tekið sé tillit til sjálfbærni við hann. Í Dalabyggð eru rekin tvö hótel, annars vegar einkarekið hótel (Vogur Country Lodge) og hins vegar hótel í hótelkeðju (Hótel Edda). Markmið ritgerðarinnar var að kanna hvort að sjálfbærni sé höfð að leiðarljósi við rekstur þessara tveggja hótela og hvort þau hafi skýra stefnumótun í rekstrinum, á sviði umhverfismála. Rannsóknin var dæmisögurannsókn en til að komast að niðurstöðu kynnti höfundur sér heimasíður beggja hótela og framkvæmdi hálfopin símaviðtöl við rekstaraðila hótelanna. Niðurstöður rannsóknarinnar voru því greindar út frá þessum tveim raundæmum. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að þrátt fyrir að ekki sé lögð áhersla á sjálfbærni við reksturinn er margt í honum sem stuðlar að sjálfbærni líkt og nýting húsakosts og áherslur á að versla af birgjum í héraði þar sem þess er kostur. Lykilorð: Ferðaþjónusta, sjálfbær þróun, sjálfbær ferðaþjónusta, hótelrekstur, Dalabyggð.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hanna Valdís Jóhannsdóttir 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/18741
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/18741

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hanna Valdís Jóhannsdóttir 1981-. Hótelrekstur í Dalabyggð : er sjálfbærni höfð að leiðarljósi ?. 2014. http://hdl.handle.net/1946/18741