Back to results

Bifröst University

Frá NPM til post-NPM? Ábyrgð og stjórnsýsluumbætur í íslenskri lögreglu 2014-2024

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerðin ber saman tvö umbótaverkefni innan íslenskrar lögreglu og sýnir hvernig þau endurspegla breyttar áherslur í stjórnsýslu, ábyrgð og lýðræðislegu aðhaldi. Annars vegar er skoðuð lagabreytingin frá 2014 sem sameinaði lögregluumdæmi úr 15 í 9 með áherslu á hagræðingu, samræmingu og miðlæga stjórnun. Hins vegar er greint frumvarp frá 2023–2024 um innra gæðaeftirlit og samhæfingu, sem lagði áherslu á faglegt aðhald og gæðastjórnun en náði ekki fram að ganga. Rannsóknin byggir á eigindlegri greiningu opinberra gagna, rammaðri inn af kenningum Mark Bovens um ábyrgðarform, Robert Dahl um lýðræði og aðhald, og fræðum Hood, Christensen og Lægreid um NPM og post-NPM umbætur. Niðurstöðurnar sýna að breytingin 2014 bar sterk einkenni NPM: miðlæg stjórn, sameining og skilvirknisáherslur sem styrktu stigveldisábyrgð en veiktu lýðræðislegt aðhald og sköpuðu fjarlægð frá grasrót. Frumvarpið 2023–2024 var aftur á móti í anda post-NPM með áherslu á fagmennsku, gagnsæi og innra eftirlit, en skorti pólitískan stuðning. Saman benda málin til þróunar í átt að umbótum sem byggja frekar á gæðum, faglegu aðhaldi og trausti en eingöngu skipulagsbreytingum. Þau varpa einnig ljósi á undirliggjandi spennu opinberrar stjórnsýslu: að samræma skilvirkni, lýðræðislegt aðhald og faglega ábyrgð þannig að umbætur verði bæði réttmætar og áhrifaríkar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kolbrún Ösp Guðrúnardóttir 1973-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53845
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53845

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kolbrún Ösp Guðrúnardóttir 1973-. Frá NPM til post-NPM? Ábyrgð og stjórnsýsluumbætur í íslenskri lögreglu 2014-2024. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53845