Bifröst University
Íslenskir skapandi frumkvöðlar á samfélagsmiðlamarkaði. Notkun íslenskra skapandi frumkvöðla á samfélagsmiðlum; uppbygging vörumerkis og tekjuöflun.
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar ritgerðar er að rannsaka hvernig íslenskir skapandi frumkvöðlar nýta samfélagsmiðla til að byggja upp vörumerki og umbreyta sýnileika í tekjur. Í ljósi vaxandi vægis samfélagsmiðla innan skapandi hagkerfisins (e. creator economy) hafa skapast ný tækifæri fyrir einstaklinga til að miðla efni, mynda tengsl og þróa sjálfstæða atvinnustarfsemi án hefðbundinna milliliða. Rannsóknin byggir á eigindlegri aðferðafræði þar sem tekin voru hálfopin viðtöl við íslenska skapandi frumkvöðla. Gögnin voru greind með þemagreiningu til að draga fram helstu mynstur í notkun samfélagsmiðla, vörumerkjauppbyggingu og tekjuöflun. Niðurstöður benda til þess að samfélagsmiðlar gegni lykilhlutverki í starfsemi frumkvöðla, bæði sem markaðstól og hluti af sköpunarferlinu sjálfu. Þeir eru nýttir til að byggja upp persónuleg vörumerki, mynda tengsl við áhorfendur og skapa tekjur með fjölbreyttum hætti. Traust, gagnvirk samskipti og stöðug framsetning reynast lykilþættir í árangri. Jafnframt kemur fram að smæð íslenska markaðarins skapar bæði áskoranir og tækifæri. Þó takmarkaður markhópur geti haft áhrif á vöxt, gera samfélagsmiðlar frumkvöðlum kleift að ná til alþjóðlegra áhorfenda. Rannsóknin veitir innsýn í hvernig samfélagsmiðlar hafa orðið lykilverkfæri í nútíma frumkvöðlastarfi og tengir reynslu íslenskra skapandi einstaklinga við fræðilega umræðu um stafræna markaðssetningu og skapandi hagkerfi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Elma Rún Sigurbjörnsdóttir 2002-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53843
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53843