Back to results

Bifröst University

Tónlistarmenn sem vörumerki

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi fjallar um tónlistarmenn sem vörumerki og hvernig þeir geta aukið vörumerkjavirði sitt til þess að hafa áhrif á tekjustrauma. Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á hvernig íslenskt tónlistarfólk og aðilar innan tónlistargeirans upplifa tengslin á milli ímyndar, vörumerkjauppbyggingar, tengslamyndunar og tekjumöguleika í tónlistarumhverfi nútímans. Rannsóknin byggir á fræðilegum ramma og eigindlegum viðtölum þar sem tekin voru hálfopin viðtöl við starfandi tónlistarmenn og einstaklinga með reynslu úr íslenskum tónlistargeira. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að vörumerkjauppbygging er orðin óaðskiljanlegur hluti af starfi tónlistarmanna, þó viðmælendur nálgist hana með ólíkum hætti. Skýr sjálfsmynd, trúverðug framsetning, samræmd ímynd og markviss samskipti við áheyrendur virðast skipta miklu máli við uppbyggingu vörumerkjavirðis. Jafnframt benda niðurstöður til þess að sterkt vörumerkjavirði auki greiðsluvilja, styrki samningsstöðu og opni fyrir fjölbreyttari tekjutækifæri, svo sem tónleika, sölu á varning, auglýsingasamstörf, og önnur verkefni utan hefðbundinnar tónlistarsköpunar. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna þó einnig að vörumerkjavirði er ekki einföld lausn á tekjuvanda tónlistarmanna. Íslenskur markaður er lítill, streymistekjur eru virkilega takmarkaðar og margir tónlistarmenn þurfa að reiða sig á marga tekjustrauma til að byggja upp sjálfbæran feril. Persónulegt vörumerki getur því virkað sem brú á milli listrænnar sköpunar og fjárhagslegrar umbunar, þar sem sýnileiki, traust og tengsl við áheyrendur verða að verðmætri auðlind.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Aníta Daðadóttir 2002-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53835
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53835

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Aníta Daðadóttir 2002-. Tónlistarmenn sem vörumerki. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53835