Bifröst University
Sjálfbær ímynd, staðbundin framleiðsla og áhrif þeirra á skynjað virði og vörumerkjatryggð
Abstract
dc:description.abstractMarkmið rannsóknarinnar er að kanna tengsl sjálfbærrar ímyndar og staðbundinnar framleiðslu við skynjað virði og vörumerkjatryggð neytenda í tilviki VAXA. Fyrirtækið var valið sem rannsóknartilvik þar sem starfsemi þess byggir á sjálfbærni, tæknivæðingu og staðbundinni matvælaframleiðsla. Notuð megindleg rannsóknaraðferð þar sem spurningakönnun var lögð fyrir neytendur til að meta viðhorf þeirra og upplifun af þessum þáttum. Niðurstöður rannsóknar benda til þess að bæði sjálfbær ímynd og staðbundin framleiðsla hafi jákvæð tengsl við skynjað virði. Þá benda niðurstöður jafnframt til þess að aukið skynjað virði tengist meiri vörumerkjatryggð. Tengslin virðast þó birtast með ólíkum hætti eftir þáttum: sjálfbær ímynd tengjast einkum viðhorfum og trausti, en staðbundin framleiðsla tengist fremur skynjun á gæðum, ferskleika og uppruna. Þar sem rannsóknin byggir á megindlegum gögnum og greiningu á tengslum milli breyta ber að túlka niðurstöðurnar með vísbendingar um tengsl fremur en bein orsakasambönd. Heildarniðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að samþætting sjálfbærni og staðbundinnar framleiðslu geti styrkt skynjað virði vörumerkja og stuðlað að aukinni vörumerkjatryggð. Niðurstöðurnar hafa hagnýtt gildi fyrir fyrirtæki sem leggja áherslu á sjálfbærni og staðbundna framleiðslu í stefnumótun, markaðssetningu og vörumerkjastjórnun. Rannsókn getur jafnframt nýst fyrirtækjum og þeim sem vilja dýpka skilning á tengslum sjálfbærni, uppruna vöru, skynjaðs virðis og neytendahegðunar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Birna Hrönn Gunnlaugsdóttir 1996-
- Karen Lena Kristjánsdóttir 1997-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53812
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53812