Back to results

Bifröst University

Innri almannatengsl í fyrirtækjum

Abstract

dc:description.abstract

Megintilgangur þessarar ritgerðar var að kanna mikilvægi innri samskipta og hvernig þau tengjast upplifun starfsmanna af upplýsingagjöf, trausti og starfsmannaánægju. Fjallað erum þróun innri samskipta og innri almannatengsla, frá hefðbundinni einhliða upplýsingamiðlun yfir í gagnvirka þátttöku sem byggir á trausti, samkennd og gagnsæi milli deilda og stjórnunarstiga. Byggt er á fræðilegri umfjöllun um almannatengsl, innri samskipti og hlutverk forystu í samskiptum, ásamt megindlegri spurningakönnun sem lögð var fyrir starfsmenn tveggja verslunar- og þjónustufyrirtækja. Markmiðið með könnuninni var að skoða hvernig starfsmenn upplifa upplýsingaflæði, gagnsæi, traust og vinnuumhverfi almennt. Niðurstöður benda til þess að starfsmenn telji innri samskipti skipta miklu máli fyrir árangursríkt samstarf, þar sem virk hlustun, skýr boðskipti og regluleg endurgjöf skipta lykilmáli. Óljós eða ófullnægjandi miðlun upplýsinga birtist sem helsta hindrun, en fræðileg umfjöllun og niðurstöður rannsóknarinnar styðja að tækifæri skipulagsheilda felist í að efla virka hlustun, jafnræði og opin samskipti. Stjórnendur þurfa í því samhengi ekki aðeins að vera boðberar upplýsinga, heldur virkir þátttakendur í daglegu starfi sem byggja upp traust, samstöðu og jákvæða starfsmenningu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Marta Gunnlaugsdóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52113
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52113

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Marta Gunnlaugsdóttir 1986-. Innri almannatengsl í fyrirtækjum. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52113