Bifröst University
Vörumerkjabreyting - Hafa íslensk fyrirtæki sem hafa framkvæmt vörumerkjabreytingu upplifað jákvæð áhrif á rekstur og ímynd?
Abstract
dc:description.abstractÚtdráttur: Ritgerð þessi fjallar um vörumerkjabreytingu, Rannsóknarspurning: Hafa íslensk fyrirtæki sem hafa framkvæmt vörumerkjabreytingu upplifað jákvæð áhrif á rekstur og ímynd? Í þessari rannsókn var markmiðið að skoða hvernig íslensk fyrirtæki upplifa áhrif vörumerkjabreytinga, bæði á ímynd sína og rekstur. Rannsóknin byggir á eigindlegri aðferð þar sem tekin voru viðtöl við fulltrúa fyrirtækja og auglýsingastofa sem hafa annað hvort framkvæmt breytingar sjálf eða unnið að slíkum verkefnum. Niðurstöðurnar sýna að vörumerkjabreytingar eru yfirleitt ekki handahófskenndar. Þær tengjast oft breyttri stefnu, nýjum markmiðum eða þörf á að tengja vörumerkið betur við samtímann. Flest fyrirtækin lögðu mikla áherslu á að undirbúa breytingarnar vel, og margir nýttu sér bæði eigindlegar og megindlegar rannsóknir í ferlinu. Þó áhætta fylgi breytingum, sérstaklega ef fólk hefur sterkar tilfinningar til gamla vörumerkisins, töldu flestir viðmælendur breytingarnar hafa haft jákvæð áhrif. Rannsóknin gefur innsýn í hvernig íslensk fyrirtæki huga að vörumerkjum sínum, og sýnir að vel ígrunduð og skipulögð vörumerkjabreyting getur styrkt stöðu fyrirtækja og aukið tengsl við markhópinn.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Rakel Anna Jónasdóttir 1985-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/51651
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/51651