Bifröst University
„Allir eiga að vera mega hressir og með brennandi áhuga“. Kröfur um samskiptahæfni í atvinnuauglýsingum og upplifun einhverfra einstaklinga á íslenskum vinnumarkaði
Abstract
dc:description.abstractFlestar rannsóknir sem gerðar hafa verið varðandi atvinnuþátttöku fatlaðs fólks benda til að sá hópur búi við félagslega jaðarsetningu í atvinnumálum. Jafnframt hefur verið sýnt fram á að einhverfir einstaklingar séu enn jaðarsettari en aðrir fötlunarhópar þegar kemur að atvinnuþátttöku. Markmið þessarar rannsóknar var að skoða hvaða þættir yllu því að einhverfir einstaklingar stæðu frekar utan við vinnumarkað en aðrir og hvort kröfur um samskiptahæfni í atvinnuauglýsingum væru einn af þeim þáttum. Rannsóknin var tvíþætt og stuðst við bæði eigindlegar og megindlegar rannsóknaraðferðir. Tekin voru hálfstöðluð viðtöl við sex einhverfa einstaklinga á vinnualdri annars vegar og hins vegar unnið með fyrirliggjandi gögn þar sem atvinnuauglýsingum var safnað yfir ákveðið tímabil. Voru gögnin að því loknu rýnd með tilliti til þess hversu ríkar kröfur voru gerðar um samskiptahæfni og hvort um mun væri að ræða eftir því hvort störf tilheyrðu hinum opinbera eða almennum vinnumarkaði eða á hvaða kunnáttustigi störfin voru. Niðurstöður eigindlega hluta rannsóknar voru þær að flestir viðmælendur nefndu ríkar kröfur um samskiptahæfni sem eina af hindrunum á vinnumarkaði. Niðurstöður megindlega hluta rannsóknar sýndu að kröfur um samskiptahæfni eru gerðar fyrir mikinn meirihluta starfa. Greina mátti mun á milli hins opinbera og hins almenna vinnumarkaðar þar sem opinberar stofnanir gera ríkari kröfur um samskiptahæfni en fyrirtæki í einkageiranum. Einnig voru ríkari kröfur gerðar um samskiptahæfni fyrir störf á kunnáttustigum 3 og 4 en á kunnáttustigum 1 og 2. Niðurstöður gefa til kynna að mögulega séu gerðar of ríkar kröfur um samskiptahæfni fyrir störf á íslenskum vinnumarkaði, sérstaklega í opinbera geiranum. Niðurstöður geta gagnast við gerð starfagreininga, starfslýsinga og hæfniskrafa með fjölbreytileika og inngildingu að leiðarljósi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Bjarney Lárudóttir Bjarnadóttir 1979-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 12Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/51640
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/51640