Back to results

Bifröst University

Að byggja brýr: Áfallaáætlanir grunnskóla í ljósi vistfræðikenningarinnar. Greining og framtíðarsýn

Abstract

dc:description.abstract

Meistaraverkefni þetta fjallar um áfallaáætlanir í grunnskólum Akureyrarbæjar og hvernig þær endurspegla vistfræðikenningu Bronfenbrenner (1979), sem skiptir umhverfi barns í fimm kerfi sem öll hafa áhrif á þroska þess. Einnig var skoðuð samvinna og upplýsingaflæði milli ólíkra kerfa og tækifæri til úrbóta. Rannsóknin varpar ljósi á mikilvægi þess að skólar séu vel undirbúnir til að takast á við margvísleg áföll sem hafa áhrif á nemendur og skólasamfélagið. Mikilvægt er að framkvæma slíka rannsókn í íslensku samhengi, sérstaklega í ljósi þeirra áskorana sem börn standa frammi fyrir í dag vegna ofbeldis, jarðhræringa og annarra samfélagslegra áfalla. Rýnihópaviðtöl voru framkvæmd við þrjú áfallateymi grunnskóla Akureyrarbæjar og áfallaáætlanir fimm annarra skóla rýndar. Niðurstöður sýna að öll kerfi vistfræðikenningarinnar birtast að einhverju leyti í núverandi áfallaáætlunum, þó með mismunandi áherslum. Rannsóknin dregur fram tækifæri til úrbóta í áfallaáætlunum grunnskóla Akureyrarbæjar með því að styrkja samstarf mismunandi kerfa og tryggja heildstæða nálgun í áfallavinnu. Niðurstöður veita skólum hagnýt verkfæri til að bregðast við áföllum og skapa skýrari ramma um virkjun áfallaáætlana. Lykilorð: Áfallaáætlanir, vistfræðikenning Bronfenbrenner, grunnskólar, áfallastjórnun, velferð nemenda.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þórdís Gísladóttir 1978-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/51100
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/51100

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þórdís Gísladóttir 1978-. Að byggja brýr: Áfallaáætlanir grunnskóla í ljósi vistfræðikenningarinnar. Greining og framtíðarsýn. 2025. https://hdl.handle.net/1946/51100