Back to results

Bifröst University

Starfsánægja: Hvernig hefur líðan framlínustarfsfólks áhrif á frammistöðu gagnvart viðskiptavinum?

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknarinnar var að skoða starfsánægju og hvernig framlínustarfsmönnum finnst líðan þeirra hafa áhrif á frammistöðu þeirra gagnvart viðskiptavinum. Starfsfólk sem er ánægt í starfi og er í góðu vinnuumhverfi endist yfirleitt lengur í starfinu og líður vel. Ef líðanin er góð þá hefur það áhrif á frammistöðu við viðskiptavini, en í einhverjum tilfellum eru það viðskiptavinirnir sem vera þess valdandi að framlínustarfsmanninum líður ekki vel í starfinu sem hann er að reyna að sinna. Rannsóknarspurningin sem sett var fram er ,,Starfsánægja: Hvernig hefur líðan framlínustarfsfólks áhrif á frammistöðu gagnvart viðskiptavinum?“. Starfsánægja er eitt af því mikilvægasta sem starfsmaður getur haft. Góður yfirmaður og leiðsögn í starfi hefur áhrif á starfsánægju og líðan starfsmanna. Helstu kenningar tengdar starfsánægju og líðan starfsmanna verða tengdar við rannsóknina. Notast var við eigindlega rannsókn (e. descriptive qualitative research) þar sem viðtalsrammi var saminn og mótaður út frá rannsóknarspurningu og fræðilegum grunni. Fjórir viðmælendur voru spurðir 15 spurninga í hálfopnum viðtölum (e. semi-structured interviews). Helstu niðurstöður voru þær að erfiðir viðskiptavinir, vinnuumhverfi og álag eru þeir þættir sem helst hafa áhrif á líðan framlínustarfsmanna og frammistöðu þeirra gagnvart viðskiptavinum. Rannsóknin undirstrikar hvað starfsánægja er mikilvæg og að starfsfólki líði vel á vinnustaðnum með góða yfirmenn og samstarfsfólk sem að styðja við bakið á sínu framlínustarfsfólki.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðfinna Gunnur Hafþórsdóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/51026
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/51026

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðfinna Gunnur Hafþórsdóttir 1991-. Starfsánægja: Hvernig hefur líðan framlínustarfsfólks áhrif á frammistöðu gagnvart viðskiptavinum?. 2025. https://hdl.handle.net/1946/51026