Back to results

Bifröst University

Að brúa bilið: Hvernig samræmist mannauðsstjórnun á milli fjölþjóðlegs móðurfélags og dótturfélags hér á landi?

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni þessa verkefnis var að kanna samræmingu fjölþjóðlegrar mannauðsstjórnunar (HRM) með því að skoða móðurfélag í lyfjaiðnaðinum og íslensk dótturfélög þess. Með því að gera eigindlega og megindlega rannsókn innan Teva Pharma Iceland og Medis ehf. var reynt að meta skynjun starfsfólks á fjölþjóðlegri mannauðsstefnu, breytingarstjórnun, samskipti leiðtoga, laun, þjálfun og almennan stuðning frá mannauðsdeildum þessara fyrirtækja. Eigindlega rannsóknin fól í sér viðtöl við starfsfólk mannauðsdeildar fyrirtækjanna til að fá innsýn í þær áskoranir sem liggja að baki að samræma mannauðsstefnur og ferla þvert á fjölþjóðlegastofnun. Megindleg rannsókn var gerð með könnun sem var dreifð til starfsfólks bæði Medis ehf. og Teva Pharma Iceland. Helstu niðurstöðurnar leiddu í ljós misræmi þar sem starfsfólk Medis segja marktækt frá minni ánægju af breytingarstjórnun og leiðtogasamskiptum samanborið við samstarfsfólk sitt hjá Teva. Að auki lýsti starfsfólk beggja stofnana yfir áhyggjum af skorti af stuðningi frá mannauðsdeild auk þjálfunar- og þróunarmöguleikum ásamt samkeppnishæfni launa á markaði sínum. Niðurstöðurnar eru greindar með viðurkenndum kenningum um mannauðsstjórnun og breytingarstjórnun til að skilja betur áhrif þessa misræmis. Rannsakandi túlkar niðurstöðurnar á þann hátt að þó Teva og Medis deili yfirgripsmiklum mannauðsstefnum þá er þörf fyrir bætt mannauðssamskipti og aukinnar þátttöku leiðtoga til að brúa bilið milli fyrirtækjanna tveggja. Niðurstöðurnar stuðla að víðtækari umræðu um aðlögun mannauðsstjórnunar í fjölþjóðlegum fyrirtækjum og veitir hagnýtar ráðleggingar fyrir mannauðsstjórnendur sem hlúa að samþættri og skilvirkari mannauðsstefnu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Erna Björg Róbertsdóttir 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50688
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/50688

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Erna Björg Róbertsdóttir 1979-. Að brúa bilið: Hvernig samræmist mannauðsstjórnun á milli fjölþjóðlegs móðurfélags og dótturfélags hér á landi?. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50688