Back to results

Bifröst University

Leiðtogar í knattspyrnu: Áhrif og árangur af þjónandi forystu

Abstract

dc:description.abstract

Hlutverk þjálfara í nútíma knattspyrnu snýst ekki einungis um taktískan og tæknilegan undirbúning leikmanna. Þeir þurfa einnig að undirbúa liðið sitt andlega og tilfinningalega. Til þess að ná því allra besta fram úr leikmannahópi sínum eru þjálfarar sífellt að leita að réttu leiðtogaaðferðunum til þess að mæta þörfum nútíma íþróttamannsins. Þjónandi forysta (e. servant leadership) hefur reynst vera áhrifamikil nálgun sem hefur vakið athygli, bæði vegna áherslu á vellíðan og þroska fylgjenda og sem leið til þess að ná árangri í skipulagsheildum. Íþróttir eru að mati rannsakanda því mjög áhugaverður vettvangur til að rannsaka þjónandi forystu. Árangurinn kemur fljótt í ljós ef rétt er staðið á málum á vettvangi íþrótta. Rannsóknarspurningin sem var lögð fram í þessu verkefni er: Áhrif og árangur þjónandi forystu í knattspyrnu. Hvað er það sem gerir þjálfara að góðum leiðtoga og hvað vilja leikmenn fá frá þjálfaranum sínum? Tilgangur rannsóknarinnar er því að meta áhrif og árangur þjónandi forystu í íþróttaumhverfinu með því að rannsaka hvernig leikmenn upplifi hvatningu frá þjálfara, hvaða ánægju þeir hafa af samskiptunum og hversu góður árangurinn er af þeirri forystu sem þjálfarar miðla. Til þess að reyna að svara rannsóknarspurningunni gerði rannsakandi eigindlega rannsókn. Tekin voru viðtöl við fimm reynslumikla og sigursæla knattspyrnumenn sem allir hafa spilað á hæsta getustigi hér á landi og erlendis. Niðurstöður rannsóknarinnar gáfu til kynna að margt bendi til þess að leikmenn sækist í eiginleika frá þjálfaranum sínum sem tengja má við eiginleika þjónandi leiðtoga.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Erlingur Agnarsson 1998-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50675
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/50675

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Erlingur Agnarsson 1998-. Leiðtogar í knattspyrnu: Áhrif og árangur af þjónandi forystu. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50675