Back to results

Bifröst University

Áskorarnir íslenskra vörumerkja þegar farið er á erlendan markað

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknarinnar er að fjalla um þær áskoranir sem íslensk vörumerki standa frammi fyrir þegar þau fara á erlenda markaði. Eigindleg aðferðafræði var notuð og viðtöl tekin við fjóra sérfæðinga í vörumerkjum. Niðurstöður sýna að íslensk vörumerki standa frammi fyrir tveimur megináskorunum, annars vegar takmarkaðri þekkingu og færni í vörumerkjafræðum og hins vegar skynjun erlendra neytenda á Íslandi og þeim vörumerkjum sem þaðan koma. Samhliða því kom í ljós að það eru þó tækifæri fyrir Ísland og að landið Ísland er meginþáttur í því hvaða augum vörumerki okkar eru litin. Íslensk vörumerki glíma við skort á djúpri þekkingu og reynslu í mörkun og alþjóðlegri markaðssetningu. Þrátt fyrir að búa yfir einstökum gæðum og uppruna virðist vanta markvissa nálgun við uppbyggingu vörumerkja. Samanburðurinn við norrænu nágrannaþjóðirnar undirstrikar þessa áskorun, þar sem lönd líkt og Danmörk og Svíþjóð hafa langa sögu um árangursríka mörkun og hafa þau skarað fram úr á alþjóðlegum mörkuðum. Einnig er áberandi hversu lítill íslenski markaðurinn er, sem setur vörumerki í þá stöðu að hafa þörf fyrir að horfa út fyrir landsteinana ef áætlað er að vaxa og stækka.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Silja Rún Bárðardóttir 1998-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/49222
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/49222

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Silja Rún Bárðardóttir 1998-. Áskorarnir íslenskra vörumerkja þegar farið er á erlendan markað. 2025. https://hdl.handle.net/1946/49222