Bifröst University
Mannauðs- og launadeildir sveitarfélaga: Samstarf, upplifun og álag
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar ritgerðar er að skoða hlutverk og tengsl mannauðs- og launadeilda innan íslenskra sveitarfélaga, þar sem mannauðsmál eru stór þáttur í stjórnun opinberra rekstrareininga. Rannsóknin byggir á megindlegri aðferðarfræði þar sem spurningalistar voru lagðir fyrir mannauðsstjóra og launafulltrúa sveitarfélaganna. Helstu rannsóknarspurningar fjalla um samstarf þessara deilda, upplifun starfsmanna af álagi í starfi, og hvort tengsl séu milli stærðar sveitarfélags og tilvistar mannauðsstjóra. Niðurstöðurnar sýna að þótt flest sveitarfélög séu með virkt samstarf milli mannauðs- og launadeilda, eru nokkur sveitarfélög þar sem samvinna er takmörkuð. Einnig kom í ljós að bæði mannauðs- og launadeildir upplifa oft á tíðum mikið álag í starfi, en þessi upplifun deilda á milli er mismunandi eftir því hvort starfsfólk er í mannauðs- eða launadeild. Mannauðsstjórar í stærri sveitarfélögum meta sig undir talsverðu álagi, en það kemur jafnframt í ljós að flest minni sveitarfélög hafa ekki sérstaka mannauðsstjóra nema þegar íbúafjöldi fer yfir ákveðinn fjölda. Rannsóknin undirstrikar mikilvægi betra samstarfs, aukins skilnings og skilvirkari verkferla í mannauðsmálum. Niðurstöðurnar benda til þess að aukin áhersla á faglega mannauðsstjórnun gæti bætt starfsumhverfi, stuðlað að betri nýtingu fjármuna og aukið ánægju starfsmanna og íbúa sveitarfélaganna.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Guðríður Þorbjörnsdóttir 1985-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/49199
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/49199