Abstract
dc:description.abstractÁgrip Tilgangur þessarar eigindlegu rannsóknar snýr að því að skoða skólaforðun í íslenskum grunnskólum með tilliti til bakgrunns nemenda og stjórnunarstíl skólastjórnenda. Tilgangur rannsóknarinnar er einnig að skoða hvaða stjórnunarstíl viðmælendur, sem allir eru stjórnendur í íslenskum grunnskólum, nota til að taka á skólaforðun. Leitast verður við með rannsókninni að athuga hvort skólaforðun sé að aukast á Íslandi og sjá hvernig skólastjórnendur vinna að því að koma í veg fyrir hana. Leitast verður þá við að því að varpa ljós á hverjir koma að þeirri vinnu í grunnskólum og enn fremur hvaða heimildir lögin veita stjórnendum til að vinna eftir í málum skólaforðunar. Markmið verkefnisins er að bæta við þekkingu á stöðu í skólaforðunarmálum meðal nemenda með íslenskan bakgrunn annars vegar og nemenda með erlendan bakgrunn hins vegar. Þá snýr markmiðið ekki síst að rýna í og sjá hvað má bæta er varðar skólaforðun og hvernig hægt sé að bregðast við og koma í veg fyrir eða draga úr skólaforðun. Skólaforðun er mjög flókið mál og getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir nemendur, foreldra og samfélagið bæði til skamms- og langtíma litið, þannig að það er til mikils að vinna. Niðurstöður verkefnisins eru þær að allar líkur séu á því að skólaforðun megi finna hjá nemendum með íslenskan bakgrunn en þó hugsanlega síður hjá nemendum með erlendan bakgrunn í íslenskum grunnskólum. Niðurstöður sýna einnig að þeir grunnskólar sem skoðaðir voru í þessari rannsókn vinna mjög líkt að skólaforðun með snemmtækri íhlutun. Munur milli þeirra er ef til vill sá hvort skólastjórnendur séu að taka ábyrgð á eftirfylgni með skólasókn eða hvort þeir treysti einfaldlega umsjónarkennara til þess verkefnis. Ljóst er að skólastjórnendur finna fyrir skort á stuðning og úrræðum frá félagsþjónustu og yfirvöldum í mjög krefjandi skólaforðun. Lykilhugtök: Skólaforðun, nemendur, erlendur bakgrunnur, skólastjórnun, stefnumiðuð stjórnun.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Agnes Björg Jónsdóttir 1976-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/49164
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/49164