Abstract
dc:description.abstractÍmynd vörumerkis á sér stað í hugum neytenda og snýst um það hvernig þeir bæði sjá og skynja vörumerkið. Vitund neytenda um vöru og þjónustu er forsenda þess að ímynd geti myndast í hugum þeirra. Markmið þessarar rannsóknar var að mæla ímynd Estée Lauder snyrtivörumerkisins og að því loknu bera hana saman við staðfærslu vörumerkisins. Upphaf Estée Lauder má rekja til ársins 1946 er fyrirtækið var stofnað af Estée Lauder sem rak það allt til ársins 1995. Könnunin er í þrem hlutum: Vitund þátttakenda, ímyndarþættir vörumerkisins og lýðfræðileg atriði. Megindleg rannsóknaraðferð í formi spurningalista og 5 punkta Likert-kvarði voru notuð við mælingar á styrkleika ímyndarþátta. Spurningarnar sem stuðst var við sýna verulegan fjölbreytileika ímyndarþátta vörumerkis Estée Lauder. Til að afla gagna um ímynd þess til samanburðar við helstu samkeppnisaðila var notast við hentugleikaúrtak á samfélagsmiðlinum Facebook, þ.e. þáttuleit (e. convenience sampling) með snjóboltaáhrifum. Rök fyrir aðferðinni eru að með því má skilja styrkleika og veikleika vörumerkis til að hagnýta gildi þess og til að ræða réttar staðfærslur. Helstu hugtök sem lýsa ímynd vörumerkis eru birt í rannsókninni í samræmi við hugtökin í Principles of Marketing (Kotler o.fl., 2019). Unnið var úr niðurstöðum rannsóknarinnar með lýsandi tölfræði. Helstu niðurstöður sýna að Estée Lauder hefur sterka vörumerkjavitund á íslenskum markaði. Lykilhugtök:Viðskiptafræði, vörumerki, Estée Lauder, ímynd, staðfærsla.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Halldóra Stefánsdóttir 1972-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- en
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/49153
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/49153