Abstract
dc:description.abstractLög um fasteignakaup skilgreina meðal annars galla og gallaþröskuld. Algengt er í dómaframkvæmd að miða við að galli nái 10% af verði fasteignar til þess að vera skilgreindur sem galli samkvæmt lögunum. Hvort sú skilgreining er hallkvæm 20 árum eftir setningu fasteignakaupalaga er álitamál þar sem fasteignir hafa hækkað í verði langt umfram launa-, neyslu- og byggingavísitölu. Gallar eru algeng ágreiningsefni í fasteignaviðskiptum og ef litið er til upprunans þá þarf að skoða eftirlit með hönnun og byggingu fasteigna. Það fyrirkomulag að byggingarstjórar eigi að gera áfangaúttektir á eigin verkum gengur þvert á allar reglur gæðastjórnunar sem leggja meðal annars áherslu á að taka ekki út eigin verk. Virkt eftirlit með húsbyggingum er líklegt til að draga úr fjölda galla. Mannvirkjaskrá sem er rafrænn miðlægur gagnagrunnur, sem var sett á laggirnar 2018 og er ætlað er að varðveita sögu fasteignar, svo sem teikningar, hönnun, úttektir, mögulega ástandskýrslur og viðhaldssögu fasteignar, er því miður í skötulíki þar sem vanhöld eru á að hún sé notuð sé eins og lagt var upp með. Ferill fasteignakaupa frá því að skrifað er undir kaupsamning, fasteign afhent, galli kemur í ljós, matsmenn kallaðir til, málarekstur fyrir dómstólum og mál leidd til lykta er bæði langur, strangur og dýr ferill. Hvort og hvernig hægt er að stytta þennan feril er vandasamt verk en benda má á að með upptöku stafrænnar og gagnvirkrar tækni mætti hraða málum og draga úr samfélagslegum kostnaði og kostnaði fyrir einstaklinginn. Velta má því upp hvort ástandsskýrslur ættu að fylgja öllum fasteignum, sem gerðar eru, af til þess bærum fagmönnum. Staðlaðar ástandsskýrslur ásamt þátttöku tryggingafélaga og tryggingavernd til handa kaupendum og seljendum myndu mögulega létta af dómskerfinu þeim málafjölda sem stofnað er til vegna galla. Með slíku fyrirkomulagi myndu gallamál að mestu leyti fara yfir til tryggingafélaganna sem er samskonar aðferð og Danir fara í gallamálum í fasteignakaupum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Björg Jónsdóttir 1959-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/48301
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/48301