Bifröst University
“Þetta snýst allt um að vera frægur“ : veigamestu þættir við uppbyggingu á jákvæðri, sterkri og einstakri ímynd vörumerkja á íslenskum markaði barnavöruverslana
Abstract
dc:description.abstractÁ síðastliðnum árum hafa margar nýjar barnavöruverslanir sprottið upp á Íslandi. Sumum þeirra vegnar vel en öðrum ekki. Má áætla að margt spili þar inn í, þar á meðal vörumerkjaímyndin og upplifun neytenda af viðskiptum við vörumerkið. Markmið rannsóknarinnar var að greina frá því hvaða þættir það eru sem íslenskar barnavöruverslanir ættu að einblína á til að skapa jákvæða, sterka og einstaka ímynd meðal neytenda sinna. Rannsóknarspurning verkefnisins var því: „Hverjir eru veigamestu þættir við uppbyggingu á jákvæðri, sterkri og einstakri ímynd vörumerkja á íslenskum markaði barnavöruverslana?“. Til að komast að niðurstöðu tók rannsakandi viðtöl við þrjá sérfræðinga á sviði markaðssetningar og uppbyggingu vörumerkjaímyndar. Þar næst samdi rannsakandi spurningakönnun og lagði hana fyrir neytendur barnavöruverslana. Alls fengust 238 svör við spurningakönnuninni og vann rannsakandi með hentugleikaúrtak með snjóboltaáhrifum. Rannsakandi taldi að tvíhliða rannsóknaraðferð gæfi sem bestar og áreiðanlegastar niðurstöður fyrir þetta viðfangsefni. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að íslenskar barnavöruverslanir þurfa að huga að bæði óáþreifanlegum og áþreifanlegum þáttum. Í þeim þáttum felst að sannfæra neytendur um sérstöðu og hvers vegna vörumerkið henti þeim, að skapa sterkt sálrænt aðgengi í hugum neytenda, gæta samræmis, mæta væntingum, uppfylla loforð, taka ábyrgð á gjörðum og mistökum sínum ásamt því að bjóða upp á góða þjónustu, gott áþreifanlegt aðgengi, gæðavörur og sanngjarnt verð.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Isabel Guðrún Gómez 1997-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/48279
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/48279