Bifröst University
Áhrif keðjuábyrgðar á starfsumhverfi og innviði í sviðslistum og kvikmyndum
Abstract
dc:description.abstractTilgangur og markmið þessarar rannsóknar er að kanna hvaða áhrif keðjuábyrgð (e. Chain of Responsibility) gæti haft á starfsumhverfi sjálfstætt starfandi listafólks í sviðslistum og kvikmyndum. Keðjuábyrgð var innleidd í íslensk lög árið 2016 og varðar útboð og innkaup á vegum hins opinbera. Keðjuábyrð inniber að í útboðs- eða innkaupaferli skulu aðilar sem eru tengdir á beinan eða óbeinan hátt með samningssambandi bera sameiginlega ábyrgð á að starfskjör og aðbúnaður sé samkvæmt kjarasamningum. Markmið með slíkum lögum er að koma í veg fyrir vinnumarkaðsbrot svo sem misnotkun á vinnuafli og félagsleg undirboð (e. Social dumping). Félagsleg undirboð verða þegar brotið er gegn kjarasamningum um laun og/eða vinnutíma, þegar framleiðsla er færð til svæða þar sem réttindastaða er veik eða þegar verkefnum fyrirtækis er útvistað til aðila með veikari samningsstöðu. Sjálfstætt starfandi listafólk í sviðslistum og kvikmyndum nýtur ekki verndar kjarasamninga nema það sé tímabundið ráðið inn í sviðslistastofnanir. Samningsstaða þessa hóps er veik og aðstöðumunur mikill. Verktaka er algengt form ráðningar og samfella í starfi er ekki fyrir hendi. Þessi staða býr til fjárhagslegt óöryggi og veikir réttindasöfnun. Opinber fjárstuðningur er umtalsverður í sviðslistum og kvikmyndum á Íslandi og því byrjar keðjan þar, hjá hinu opinbera. Í sviðslistum gefur hið opinbera út ólík viðmið fyrir sömu störf, unnin af sama fólkinu, með sömu háskólamenntunina. Í kvikmyndum veitir hið opinbera margháttaðan fjárstuðning til atvinnugreinar sem hefur enga kjarasamninga að styðjast við. Til að öðlast gleggri sýn á viðfangsefnið voru tekin viðtöl við ýmsa hagaðila og spurningakönnun lögð fyrir listamenn í því skyni að fá þeirra mat á starfsumhverfið og hvort keðjuábyrgð gæti þar haft áhrif.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hrafnhildur Theódórsdóttir 1969-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/46338
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/46338