Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi er fræðileg og fjallar um mannauðsstjórnun í yfirstandandi efnahagshruni. Skoðað er hvort rannsókn sem gerð hefur verið um efnið sýni hvort efnahagshrunið hefur neikvæð áhrif á líðan, viðhorf og væntingar starfsmanna í kreppu. Til hliðsjónar var tekið viðtal við stjórnenda fyrirtækis sem stendur í miklum breytingum vegna efnahagshrunsins. Gagnabankar voru nýttir við heimildaöflun en fræðibækur, tímaritsgreinar og rannsóknir notaðar við ritun verksins. Í mannauðsstjórnun er aðaláhersla lögð á starfsfólk því sýnt hefur verið fram á að góð mannauðsstjórnun getur haft mikil áhrif á afkomu fyrirtækja. Mikilvægt er að hugsa vel um mannauðinn í efnahagskreppu, rekstaraðstæður fyrirtækja geta orðið erfiðar og til að auka líkurnar á að fyrirtækið lifi efnahagshrunið af þarf að sinna vel uppbyggingarstarfi og þarf hæft starfsfólk til að takast á við það. Niðurstöður rannsóknar sem fjallað er um í ritgerðinni gefa það til kynna að með góðri mannauðsstjórnun er auveldara að takast á við afleiðingar sem efnahagshrunið hefur á starfsfólk. Viðtalið sem tekið var við stjórnenda Arion banka var notað til hliðsjónar við rannsóknina og sýnir það einnig að mikilvægt sé að halda utan um mannauðinn á krepputímum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sandra Kristín Jónsdóttir 1985-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/4604
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/4604