Back to results

Bifröst University

Tækni og skapandi kennsla : notkun á stafrænni tækni í kennslu í íslenskum grunnskólum

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur þessarar ritgerðar er að kanna hvernig notkun stafrænna tækja er háttað í íslenskum grunnskólum, hvernig hún gagnast nemendum og hvernig kennarar geta nýtt sér slíka tækni í kennslustofunni. Til þess að svara því er farið ítarlega yfir efni sem tengist kennsluháttum, sköpunarkrafti og tækni á Íslandi. Auk þess sem tekin eru viðtöl við grunnskólakennara. Til að varpa ljósi á viðfangsefnið verður fjallað um sögu menntunar með tilliti til fjölbreyttra kennsluhátta, og eru þar ekki síst lagðar til grundvallar hugmyndir bandaríska menntafrömuðsins ,,John Dewey”, sem strax á nítjándu öld lagði mikla áherslu á aðferðina ,,að læra með því að gera.” Einnig verður rýnt í fleiri aðferðir og hugmyndafræði sem tengjast efnistökum rannsóknarinnar. Hvað varðar greiningar og aðrar áskoranir í námi er farið yfir stöðu nemenda með sérþarfir og hvaða áskoranir þeir búa við dags daglega, en þar gæti tæknin komið sterk inn og einfaldað nám þeirra til muna. Einnig verður farið yfir stöðu á notkun stafrænna tækja bæði erlendis sem og hér á landi. Notkun stafrænna tækja í grunnskólum á Íslandi er virkilega jákvæð þróun sem leiðir til meiri námsánægju, námsáhuga, eykur sjálfstraust og getur henntað mun breiðari hópi barna með mismunandi þarfir. Tækninotkun í íslenskum grunnskólum er þó á byrjunarstigi en með aukinni áherslu á skapandi tækninotkun í kennslu á Íslandi, geta nemendur fengið tækifæri til að njóta allra þeirra jákvæðu áhrifa sem tæknin getur haft í för með sér og lært að nýta sér tæknina til framdráttar

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gróa Sif Jóelsdóttir 1988-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/45142
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/45142

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gróa Sif Jóelsdóttir 1988-. Tækni og skapandi kennsla : notkun á stafrænni tækni í kennslu í íslenskum grunnskólum. 2023. http://hdl.handle.net/1946/45142