Back to results

Bifröst University

Áhrif umhverfisvænnar skynjunar neytenda og umhverfisvæns viðhorfs þeirra á vörumerkjavirði íslenskra fatavörumerkja

Abstract

dc:description.abstract

Vörumerkjavirði er mikilvægt hugtak í viðskipta- og markaðsfræði í dag. Vörumerkjavirði getur meðal annars fært fyrirtækjum meiri hagnað, velgengni og árangursríkari markaðsaðgerðir. Vörumerkjavirði getur einnig auðveldað viðskiptavinum að túlka og vinna úr upplýsingum vörumerkja sem getur haft jákvæð áhrif á kaupákvörðun þeirra og auðveldað þeim valið þegar kemur að því að kaupa vöru eða velja ákveðið vörumerki. Fata- og textíliðnaðurinn er afar mengandi og neytendur eru margir hverjir meðvitaðir um þann umhverfisvanda sem hann veldur. Neytendur gera æ meiri kröfur um að fyrirtæki í fataiðnaði leggi áherslu á umhverfisvernd og sífellt fleiri fyrirtæki hafa tileinkað sér umhverfisvænar áherslur. Rannsóknarefni þessarar ritgerðar er að skoða hversu mikil áhrif umhverfisvæn skynjun viðskiptavina hefur á vörumerkjavirði íslenskra fatavörumerkja og hvort umhverfisvænt viðhorf viðskiptavina hafi áhrif á jákvætt viðhorf þeirra í garð íslenskra fatavörumerkja. Til að afmarka viðfangsefni rannsóknarinnar voru valin tvö íslensk fatavörumerki sem hafa skýra umhverfisstefnu; As We Grow og Farmers Market. Megindleg rannsókn var gerð í formi spurningakönnunar þar sem notast var við snjóbolta- og hentugleikaúrtak á samfélagsmiðlinum Facebook og í gegnum tölvupóst. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að umhverfisvæn skynjun viðskiptavina á vörumerkjunum, sem hluti af umhverfisvænni ímynd þeirra, er mikilvæg breyta sem hefur áhrif á vörumerkjavirði þessara fatavörumerkja. Þá sýndu niðurstöður rannsóknarinnar að afstaða viðskiptavina til umhverfismála eða umhverfisvænt viðhorf viðskiptavina hefur sömuleiðis áhrif á vörumerkjavirði fatavörumerkjanna tveggja en áhrifin eru ekki eins mikil og af umhverfisvænni skynjun viðskiptavina eða ímynd vörumerkjanna sem umhverfisvænna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Rakel Jónsdóttir 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/43447
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/43447

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Rakel Jónsdóttir 1987-. Áhrif umhverfisvænnar skynjunar neytenda og umhverfisvæns viðhorfs þeirra á vörumerkjavirði íslenskra fatavörumerkja. 2023. http://hdl.handle.net/1946/43447