{"id":{"repo_id":"bifrost","oai_identifier":"oai:skemman.is:1946/43447"},"canonical_url":"https://search.dev.ndltd.org/etd/bifrost/oai:skemman.is:1946/43447","repository":{"repo_id":"bifrost","name":"Bifröst University","base_url":"https://skemman.is/oai/request"},"display":{"title":"Áhrif umhverfisvænnar skynjunar neytenda og umhverfisvæns viðhorfs þeirra á vörumerkjavirði íslenskra fatavörumerkja","abstract":"Vörumerkjavirði er mikilvægt hugtak í viðskipta- og markaðsfræði í dag. Vörumerkjavirði getur meðal annars fært fyrirtækjum meiri hagnað, velgengni og árangursríkari markaðsaðgerðir. Vörumerkjavirði getur einnig auðveldað viðskiptavinum að túlka og vinna úr upplýsingum vörumerkja sem getur haft jákvæð áhrif á kaupákvörðun þeirra og auðveldað þeim valið þegar kemur að því að kaupa vöru eða velja ákveðið vörumerki. Fata- og textíliðnaðurinn er afar mengandi og neytendur eru margir hverjir meðvitaðir um þann umhverfisvanda sem hann veldur. Neytendur gera æ meiri kröfur um að fyrirtæki í fataiðnaði leggi áherslu á umhverfisvernd og sífellt fleiri fyrirtæki hafa tileinkað sér umhverfisvænar áherslur. Rannsóknarefni þessarar ritgerðar er að skoða hversu mikil áhrif umhverfisvæn skynjun viðskiptavina hefur á vörumerkjavirði íslenskra fatavörumerkja og hvort umhverfisvænt viðhorf viðskiptavina hafi áhrif á jákvætt viðhorf þeirra í garð íslenskra fatavörumerkja. Til að afmarka viðfangsefni rannsóknarinnar voru valin tvö íslensk fatavörumerki sem hafa skýra umhverfisstefnu; As We Grow og Farmers Market. Megindleg rannsókn var gerð í formi spurningakönnunar þar sem notast var við snjóbolta- og hentugleikaúrtak á samfélagsmiðlinum Facebook og í gegnum tölvupóst. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að umhverfisvæn skynjun viðskiptavina á vörumerkjunum, sem hluti af umhverfisvænni ímynd þeirra, er mikilvæg breyta sem hefur áhrif á vörumerkjavirði þessara fatavörumerkja. Þá sýndu niðurstöður rannsóknarinnar að afstaða viðskiptavina til umhverfismála eða umhverfisvænt viðhorf viðskiptavina hefur sömuleiðis áhrif á vörumerkjavirði fatavörumerkjanna tveggja en áhrifin eru ekki eins mikil og af umhverfisvænni skynjun viðskiptavina eða ímynd vörumerkjanna sem umhverfisvænna.","abstract_html":"Vörumerkjavirði er mikilvægt hugtak í viðskipta- og markaðsfræði í dag. Vörumerkjavirði getur meðal annars fært fyrirtækjum meiri hagnað, velgengni og árangursríkari markaðsaðgerðir. Vörumerkjavirði getur einnig auðveldað viðskiptavinum að túlka og vinna úr upplýsingum vörumerkja sem getur haft jákvæð áhrif á kaupákvörðun þeirra og auðveldað þeim valið þegar kemur að því að kaupa vöru eða velja ákveðið vörumerki. Fata- og textíliðnaðurinn er afar mengandi og neytendur eru margir hverjir meðvitaðir um þann umhverfisvanda sem hann veldur. Neytendur gera æ meiri kröfur um að fyrirtæki í fataiðnaði leggi áherslu á umhverfisvernd og sífellt fleiri fyrirtæki hafa tileinkað sér umhverfisvænar áherslur. Rannsóknarefni þessarar ritgerðar er að skoða hversu mikil áhrif umhverfisvæn skynjun viðskiptavina hefur á vörumerkjavirði íslenskra fatavörumerkja og hvort umhverfisvænt viðhorf viðskiptavina hafi áhrif á jákvætt viðhorf þeirra í garð íslenskra fatavörumerkja. Til að afmarka viðfangsefni rannsóknarinnar voru valin tvö íslensk fatavörumerki sem hafa skýra umhverfisstefnu; As We Grow og Farmers Market. Megindleg rannsókn var gerð í formi spurningakönnunar þar sem notast var við snjóbolta- og hentugleikaúrtak á samfélagsmiðlinum Facebook og í gegnum tölvupóst. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að umhverfisvæn skynjun viðskiptavina á vörumerkjunum, sem hluti af umhverfisvænni ímynd þeirra, er mikilvæg breyta sem hefur áhrif á vörumerkjavirði þessara fatavörumerkja. Þá sýndu niðurstöður rannsóknarinnar að afstaða viðskiptavina til umhverfismála eða umhverfisvænt viðhorf viðskiptavina hefur sömuleiðis áhrif á vörumerkjavirði fatavörumerkjanna tveggja en áhrifin eru ekki eins mikil og af umhverfisvænni skynjun viðskiptavina eða ímynd vörumerkjanna sem umhverfisvænna.","abstract_has_math":false,"creators":["Rakel Jónsdóttir 1987-"],"institution":null,"degree_name":null,"degree_level":null,"degree_discipline":null,"degree_department":null,"school":null,"contributors":["Háskólinn á Bifröst"],"advisors":[],"committee_chairs":[],"committee_members":[],"year":2023,"date_issued":"2023-03-16T13:12:12Z","date_published":"2023-03-16T13:12:12Z","updated_at":"2026-07-27T18:57:09Z","subjects":["Viðskiptafræði","Markaðsfræði","Vörumerki","Neytendahegðun","Fataiðnaður","Umhverfisáhrif"],"languages":["is"],"rights":[],"rights_urls":[],"identifier_entries":[]},"links":{"outbound_url":"http://hdl.handle.net/1946/43447","outbound_label":"Handle","outbound_source":"dc:identifier.uri"},"metadata_groups":[{"id":"people","label":"People","entries":[{"key":"dc:contributor","label":"Contributor","values":["Háskólinn á Bifröst"]},{"key":"dc:creator","label":"Author","values":["Rakel Jónsdóttir 1987-"]}]},{"id":"academic_context","label":"Academic Context","entries":[{"key":"dc:date.accessioned","label":"Dc Date Accessioned","values":["2023-03-16T13:12:11Z"]},{"key":"dc:date.available","label":"Dc Date Available","values":["2023-03-16T13:12:11Z"]},{"key":"dc:date.issued","label":"Date","values":["2023-03-16T13:12:12Z"]},{"key":"dc:type","label":"Dc Type","values":["Thesis"]}]},{"id":"subjects_keywords","label":"Subjects and Keywords","entries":[{"key":"dc:subject","label":"Dc Subject","values":["Viðskiptafræði","Markaðsfræði","Vörumerki","Neytendahegðun","Fataiðnaður","Umhverfisáhrif"]}]},{"id":"language_rights","label":"Language and Rights","entries":[{"key":"dc:language.iso","label":"Language (ISO)","values":["is"]}]},{"id":"identifiers","label":"Identifiers","entries":[{"key":"dc:identifier.uri","label":"Identifier URI","values":["http://hdl.handle.net/1946/43447"]}]},{"id":"additional","label":"Additional Metadata","entries":[{"key":"dc:description.abstract","label":"Abstract","values":["Vörumerkjavirði er mikilvægt hugtak í viðskipta- og markaðsfræði í dag. Vörumerkjavirði getur meðal annars fært fyrirtækjum meiri hagnað, velgengni og árangursríkari markaðsaðgerðir. Vörumerkjavirði getur einnig auðveldað viðskiptavinum að túlka og vinna úr upplýsingum vörumerkja sem getur haft jákvæð áhrif á kaupákvörðun þeirra og auðveldað þeim valið þegar kemur að því að kaupa vöru eða velja ákveðið vörumerki. Fata- og textíliðnaðurinn er afar mengandi og neytendur eru margir hverjir meðvitaðir um þann umhverfisvanda sem hann veldur. Neytendur gera æ meiri kröfur um að fyrirtæki í fataiðnaði leggi áherslu á umhverfisvernd og sífellt fleiri fyrirtæki hafa tileinkað sér umhverfisvænar áherslur. Rannsóknarefni þessarar ritgerðar er að skoða hversu mikil áhrif umhverfisvæn skynjun viðskiptavina hefur á vörumerkjavirði íslenskra fatavörumerkja og hvort umhverfisvænt viðhorf viðskiptavina hafi áhrif á jákvætt viðhorf þeirra í garð íslenskra fatavörumerkja. Til að afmarka viðfangsefni rannsóknarinnar voru valin tvö íslensk fatavörumerki sem hafa skýra umhverfisstefnu; As We Grow og Farmers Market. Megindleg rannsókn var gerð í formi spurningakönnunar þar sem notast var við snjóbolta- og hentugleikaúrtak á samfélagsmiðlinum Facebook og í gegnum tölvupóst. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að umhverfisvæn skynjun viðskiptavina á vörumerkjunum, sem hluti af umhverfisvænni ímynd þeirra, er mikilvæg breyta sem hefur áhrif á vörumerkjavirði þessara fatavörumerkja. Þá sýndu niðurstöður rannsóknarinnar að afstaða viðskiptavina til umhverfismála eða umhverfisvænt viðhorf viðskiptavina hefur sömuleiðis áhrif á vörumerkjavirði fatavörumerkjanna tveggja en áhrifin eru ekki eins mikil og af umhverfisvænni skynjun viðskiptavina eða ímynd vörumerkjanna sem umhverfisvænna."]},{"key":"dc:title","label":"Title","values":["Áhrif umhverfisvænnar skynjunar neytenda og umhverfisvæns viðhorfs þeirra á vörumerkjavirði íslenskra fatavörumerkja"]}]}],"canonical_facts":{"dc:contributor":["Háskólinn á Bifröst"],"dc:creator":["Rakel Jónsdóttir 1987-"],"dc:date.accessioned":["2023-03-16T13:12:11Z"],"dc:date.available":["2023-03-16T13:12:11Z"],"dc:date.issued":["2023-03-16T13:12:12Z"],"dc:description.abstract":["Vörumerkjavirði er mikilvægt hugtak í viðskipta- og markaðsfræði í dag. Vörumerkjavirði getur meðal annars fært fyrirtækjum meiri hagnað, velgengni og árangursríkari markaðsaðgerðir. Vörumerkjavirði getur einnig auðveldað viðskiptavinum að túlka og vinna úr upplýsingum vörumerkja sem getur haft jákvæð áhrif á kaupákvörðun þeirra og auðveldað þeim valið þegar kemur að því að kaupa vöru eða velja ákveðið vörumerki. Fata- og textíliðnaðurinn er afar mengandi og neytendur eru margir hverjir meðvitaðir um þann umhverfisvanda sem hann veldur. Neytendur gera æ meiri kröfur um að fyrirtæki í fataiðnaði leggi áherslu á umhverfisvernd og sífellt fleiri fyrirtæki hafa tileinkað sér umhverfisvænar áherslur. Rannsóknarefni þessarar ritgerðar er að skoða hversu mikil áhrif umhverfisvæn skynjun viðskiptavina hefur á vörumerkjavirði íslenskra fatavörumerkja og hvort umhverfisvænt viðhorf viðskiptavina hafi áhrif á jákvætt viðhorf þeirra í garð íslenskra fatavörumerkja. Til að afmarka viðfangsefni rannsóknarinnar voru valin tvö íslensk fatavörumerki sem hafa skýra umhverfisstefnu; As We Grow og Farmers Market. Megindleg rannsókn var gerð í formi spurningakönnunar þar sem notast var við snjóbolta- og hentugleikaúrtak á samfélagsmiðlinum Facebook og í gegnum tölvupóst. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að umhverfisvæn skynjun viðskiptavina á vörumerkjunum, sem hluti af umhverfisvænni ímynd þeirra, er mikilvæg breyta sem hefur áhrif á vörumerkjavirði þessara fatavörumerkja. Þá sýndu niðurstöður rannsóknarinnar að afstaða viðskiptavina til umhverfismála eða umhverfisvænt viðhorf viðskiptavina hefur sömuleiðis áhrif á vörumerkjavirði fatavörumerkjanna tveggja en áhrifin eru ekki eins mikil og af umhverfisvænni skynjun viðskiptavina eða ímynd vörumerkjanna sem umhverfisvænna."],"dc:identifier.uri":["http://hdl.handle.net/1946/43447"],"dc:language.iso":["is"],"dc:subject":["Viðskiptafræði","Markaðsfræði","Vörumerki","Neytendahegðun","Fataiðnaður","Umhverfisáhrif"],"dc:title":["Áhrif umhverfisvænnar skynjunar neytenda og umhverfisvæns viðhorfs þeirra á vörumerkjavirði íslenskra fatavörumerkja"],"dc:type":["Thesis"]},"updated_at":"2026-07-27T18:57:09Z"}