Bifröst University
Markaðshneigð og markaðsleg færni fyrirtækja í sjávarútvegi á Vestfjörðum. Hversu markaðshneigð eru fyrirtæki í sjávarútvegi á Vestfjörðum?
Abstract
dc:description.abstractFyrirtæki leita stöðugt leiða til að hámarka árangur sinn, efla stöðu sína á markaði og auka forskot sitt á helstu keppinauta sína. Sjávarútvegur er atvinnugrein sem hefur verið ein af grunnstoðum íslenska hagkerfisins og er hann ábyrgur fyrir stórum hluta af útflutningi og vergri landsframleiðslu Íslendinga. Fyrirtæki í sjávarútvegi á Vestfjörðum eru leiðandi í atvinnulífinu og þeirri miklu uppbyggingu sem nú er hafin um allt svæðið, tilkomna meðal annars vegna aukinna umsvifa í fiskeldi. Rannsóknir hafa sýnt fram á að markaðshneigð og markaðsleg færni getur bætt árangur fyrirtækja og styrkt stöðu þeirra gagnvart samkeppnisaðilum. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna hversu markaðshneigð fyrirtæki í sjávarútvegi á Vestfjörðum eru og hversu mikilli markaðslegri færni þau búa yfir og einnig hvort það séu tengsl á milli markaðslegrar færni þeirra og árangurs í samanburði við helstu keppinauta. Með því að rannsaka markaðshneigð og markaðslega færni þeirra er hægt að varpa ljósi á hvar rými er fyrir umbætur og koma auga á markaðsleg tækifæri sem fyrir þessum fyrirtækjum liggja. Framkvæmd var megindleg rannsókn þar sem spurningalisti var lagður fyrir stjórnendur eða þá starfsmenn fyrirtækis sem ábyrgir eru fyrir markaðsmálum fyrirtækisins. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að fyrirtæki í sjávarútvegi á Vestfjörðum telja markaðshneigð sína og markaðslega færni yfir meðallagi og mátu markaðslegan og fjárhagslegan árangur sinn að stærstum hluta betri en sinna helstu samkeppnisaðila. Einnig fundust jákvæð marktæk tengsl fundust á milli markaðslegrar færni fyrirtækja og árangurs þeirra. Að safna gögnum og miðla áfram niðurstöðum rannsókna á markaðsstarfi íslenskra fyrirtækja er mikilvægur þáttur í að íslenskur iðnaður bæti samkeppnishæfni sína á alþjóðagrundvelli. Rannsóknin einnig mikilvæg fyrir vestfirsk fyrirtæki og atvinnulífið í heild á svæði sem stendur frammi fyrir mikilli sókn innan greinarinnar og uppbyggingu á komandi árum. Landshlutar fjarri höfuðborgarsvæðinu þurfa að leggja sig fram til að vera samkeppnishæfir við aðra landshluta og fyrirtæki sem eru jafnvel í betri stöðu hvað varðar samgöngur, raforkumál og flutninga á erlenda markaði. Því er mikilvægt fyrir þau að vera vel vakandi fyrir tækifærum til að styrkja stöðu sína og að viðbragð innan þeirra sé kvikt og markvisst.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Andrea Gylfadóttir 1991-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/42561
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/42561