Back to results

Bifröst University

Þjónandi forysta í grunnskólum : úr íslenskum og enskum raunveruleika

Abstract

dc:description.abstract

Starfsumhverfi innan grunnskóla skiptir miklu máli og þar hefur verið sýnt fram á tengsl starfsánægju og árangurs í starfi, árangurs sem skólar eiga að meta og miða starf sitt út frá því að auka gæði í starfi sínu. Hugmyndafræði þjónandi forystu horfir til þess að leiðtogi sé fyrst þjónn sem hafi tekið meðvitaða ákvörðun um forystu sem leiðir til þess að hann hjálpi fólki að blómstra á þann hátt að afraksturinn sé að hann geti stigið fram og leitt starfið fremstur meðal jafningja. Fyrri rannsóknir sýna tengsl þjónandi forystu í skólum og árangurs starfsins. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna stöðu hugmyndafræði þjónandi forystu að mati starfsfólks innan tveggja grunnskóla, Ardleigh Green í Romford í Englandi og Naustaskóla á Akureyri. Gerð var spurningalistakönnum með OLA-matstæki James Laub til að kanna stöðu þjónandi forystu auk þess að meta starfsánægju og tengsl milli þjónandi forystu og starfsánægju. Einnig var starfsandi kannaður, áherslur í gæðastarfi og mat á gæðum í starfi skóla. Helstu niðurstöður benda til þess að í báðum skólunum sé hugmyndafræði þjónandi forystu til staðar, og einkenni hugmyndafræðinnar heldur sterkari í Ardleigh Green. Starfsánægja var mikil, sambærileg í skólunum báðum og fram kom marktæk jákvæð fylgni milli þjónandi forystu og starfsánægju. Þá kom í ljós að báðir skólar leggja mikla áherslu á gæðastarf miðað við lagalega umgjörð og námskrár og telja sig í góðu samstarfi við nærsamfélag sitt. Niðurstöðurnar eru framlag til þekkingar um þjónandi forystu í skólum og geta nýst við þróun uppbyggilegrar forystu og starfshátta í skólum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Magnús Þór Jónsson 1971-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/42557
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/42557

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Magnús Þór Jónsson 1971-. Þjónandi forysta í grunnskólum : úr íslenskum og enskum raunveruleika. 2022. http://hdl.handle.net/1946/42557