Bifröst University
Hver eru áhrif og ávinningur CRM hugmyndafræðinnar á viðskiptavini Símans, Vodafone, Nova og Hringdu.
Abstract
dc:description.abstractÍ ritgerðinni er reynt að svara hver séu áhrif og ávinningur stefnumiðaðrar stjórnunar viðskiptatengsla (e. customer relationship management) (CRM) viðskiptavina Símans, Vodafone, Nova og Hringdu. Gerð er grein fyrir hugmyndafræðinni til þess að nálgast hver upplifun viðskiptavina er í samhengi við CRM. Markmið CRM er að byggja upp langtímasamband þar sem aðaláherslan er að uppfylla þarfir og væntingar lykilviðskiptavina. Nálgun viðfangsefnisins er byggð á kenningum, rannsóknum og fræðiritum ásamt athugun á samskiptaleiðum fyrirtækjanna. Megindlegri aðferð var beitt við rannsóknina og var spurningakönnun hönnuð til þess að meta frammistöðu fyrirtækjanna á CRM út frá áhrifum og ávinningi viðskiptavina. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að meirihluti þátttakenda finnur fyrir áhrifum af CRM. Þátttakendum var skipt niður eftir fyrirtækjum og í lokin var gerður samanburður á milli Símans, Vodafone, Nova og Hringdu. Úrvinnsla og uppsetning niðurstaða var gerð að fyrirmynd annarra rannsókna þar sem svör þátttakenda gefa viðskiptafyrirtæki þeirra einkunn, sem getur leiðbeint fyrirtæki til þess að bregðast við með hnitmiðuðum aðgerðum til að hámarka nýtingu og ná markmiðum CRM.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Henrik Chadwick Hlynsson 1990-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/40561
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/40561