Back to results

Bifröst University

Markaðsstefnumótun Brár árið 2022

Abstract

dc:description.abstract

Markaðsstefnumótun er rannsóknarferli og uppsetning aðgerða sem fyrirtæki nota til þess að aðlaga stefnu eða fara í úrbætur. Markaðsstefnumótun er í þessu tilfelli framkvæmd fyrir fyrirtæki á sviði fatamarkaðar. Allir íbúar landsins koma að fatamarkaðnum á einn eða annan hátt og er hann því viðamikið viðfangsefni sem vert er að skoða. Megindlegri og eigindlegri aðferðafræði var beitt til þess að kanna viðhorf landsmanna til umrædds fyrirtækis og bera kennsl á almenna verslunarhegðun. Auk þess voru framkvæmdar greiningar á starfseminni og út frá þeim var lögð til aðgerðaráætlun næsta árs. Markmið verkefnisins var að hvetja til nýtingu gagna og þekkingar á markaðsmálum en umrætt fyrirtæki hefur til þessa ekki stuðst við fræðilegan bakgrunn við ákvarðanatöku í þeim. Einnig var verkefninu ætlað að auka framleiðni markaðsaðgerða, gera fyrirtækið sýnilegra og arðbært. Þessi vinna á að marka upphaf nýs verklags innan fyrirtækisins þar sem skýr markmið verða sett og aðgerðir áætlaðar út frá þeim. Helstu niðurstöður verkefnisins eru þær að fyrirtækið stendur höllum fæti á sviði þekkingar í markaðsmálum og er hvorki að mæla frammistöðu né vinna að settum markmiðum. Það er þó margt sem fyrirtækið gerir vel en gæti mögulega gert betur með því að nota þau nýju verkfæri sem kynnt hafa verið fyrir eiganda. Þar má til dæmis nefna notkun kostaðra auglýsinga, virkjun tölvupóstlista, styrking tengsla við ánægða og trygga viðskiptavini og aukin áhersla á myndefni af söluvörum. Einnig er mikilvægt að ásýnd fyrirtækisins sé samræmd og stöðug, meðal annars framkoma allra starfsmanna við viðskiptavini með tilliti til staðfestu og gilda.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Árdís Elfa Óskarsdóttir 1998-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/40528
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/40528

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Árdís Elfa Óskarsdóttir 1998-. Markaðsstefnumótun Brár árið 2022. 2022. http://hdl.handle.net/1946/40528