Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannsóknar er að athuga vefnað á Íslandi með tilkomu fyrsta rafræna vefstólsins til landsins árið 2016. Nokkrir þátttakendur námskeiðsins ,,Umsýsla, meðferð og notkun á TC2 stafrænum vefstól” eru teknir tali en námskeiðið er kynning Textilmiðstöðvar Íslands á Thread Control 2 vefstólnum og hefur verið haldið nokkuð reglulega á Blöndósi allt frá kaupum á honum. Tilgangur rannsóknar er einnig að upplýsa um stöðu vefnaðar hérlendis með hliðsjón af hugmyndafræði 21.aldarinnar, nýsköpun og sjálfbærni til að athuga hvort þessir þættir endurveki ekki áhuga á vefnaði nytjalistar með smáframleiðslu í huga eða öðru handverki listiðnaðar. Forsendur eru fræðilegar heimildir um vefnað og samtímagögn ásamt viðtölum. Reynsla viðmælenda þekur töluvert umfang viðfangefnis allt frá vefnaði sem handverkslist unnin á eigin verkstæði yfir í sérþekkingu á sviði textíls, grafískrar hönnunar og fatahönnunar. Þessi rannsókn er um vefnað þar sem hans er getið í sögulegum heimildum og hvar honum er að skjóta upp á yfirborðið eftir áralanga þögn. Niðurstöður leiða í ljós að rafrænn vefstóll til nokkura ára hefur síður en svo dregið úr áhuga á handverki listiðnaðar því notkun stólsins krefjist einnig handverks og hins listræna mats. Vonast er til að nýsköpun og sjálfbærni aukist út frá forsendum bandþróunar og nýsköpunar í gerð og þróun bands. Gildi handverks haldi sér því fæstir hafi hugsað sér að fara út í framleiðslu en telja vefstóllinn afar hentugan fyrir fyrstu gerð vefnaðar eða það sem kallað er ,,prototypugerð“, með framleiðslu erlendis þá í huga. Viðmælendur voru hrifnastir af myndvefnaðarmögleikum stólsins, Jacquard vefnaðinum og sjálfvirknimunstur uppbindinga vefnaðar. Mest letjandi þátturinn við meiri sköpun á stólnum væri hins vegar ónóg tölvuþekking vefnaðaráhugafólks sem hrjáði marga. Viðmælendur vilja gjarnan fá stól í mesta þéttbýliskjarnann til að efla vefnaðinn.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Vera Ósk Steinsen 1961-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/39605
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/39605