Bifröst University
Áhrif fjarvinnu á starfsánægju og líðan starfsfólks á Covid tímum
Abstract
dc:description.abstractSkrifstofustarfsfólk flugfélagsins Icelandair fór í fjarvinnu í kjölfar Covid-19 heimsfaraldursins árið 2020. Markmið rannsóknarinnar var að skoða fjarvinnu út frá tveimur rannsóknarspurningum, hvaða áhrif hefur fjarvinna á starfsánægju hjá starfsfólki og hvaða áhrif hefur fjarvinna á líðan starfsfólks. Blönduð aðferð var notuð í rannsókninni þar sem megindleg spurningakönnun var lögð fyrir skrifstofustarfsfólk fyrirtækisins og eigindleg hálfopin viðtöl (e. semi-structured interviews) tekin við sex stjórnendur og millistjórnendur innan fyrirtækisins sem voru með mannaforráð. Þar voru kannaðir þeir þættir sem hafa haft áhrif á starfsánægju og líðan í fyrri rannsóknum. Áhrif fjarvinnu á starfsánægju var mismunandi á milli hópa, hún jókst hjá hluta starfsfólks og minnkaði hjá öðrum. Þeir sem voru með minnsta jafnvægið á milli vinnu og einkalífs upplifðu minni starfsánægju. Flestir stjórnendur töldu að fjarvinna hefði neikvæð áhrif á líðan starfsfólks. Fyrirtækið gekk í gegnum mikla óvissutíma samhliða því að heimsfaraldur Covid-19 hafði mikil áhrif á samfélög um heim allan. Mikið var um hópuppsagnir í fyrirtækinu samhliða því að fólk var í fjarvinnu. Það getur einnig haft áhrif á niðurstöður rannsóknarinnar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Þóra Halldóra Gunnarsdóttir 1985-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/37635
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/37635