Back to results

Bifröst University

Viðskiptavinagrunduð markaðshneigð og ánægja viðskiptavina : hvaða áhrif hefur markaðshneigð á viðskiptavini matvöruverslana?

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari rannsókn var sjónum beint að markaðshneigð, ákveðinni tegund stefnu fyrirtækja sem hverfist um að þekkja viðskiptavini, núverandi sem og framtíðar og færa þeim í sífellu aukið virði með því að uppfylla þarfir og óskir. Markaðshneigð snýr að því að safna upplýsingum úr gervöllu markaðsumhverfinu, miðla þeim um allt fyrirtækið og bregðast við upplýsingunum með virðisaukandi hætti. Ávinningur markaðshneigðar er meiri ánægja starfsfólks og viðskiptavina sem leiðir til betri heildarframmistöðu fyrirtækisins. Markaðshneigð meðal verslana á íslenskum markaði matvöruverslana var tekin fyrir í þessari rannsókn, þar sem mælt var magn markaðshneigðar og ánægja viðskiptavina meðal fjögurra stærstu matvöruverslanakeðja Íslands sem samanlagt hafa um þrjá fjórðunga markaðshlutdeild. Rannsóknaraðferðin skilgreinist sem megindleg, þar sem lögð var fyrir viðskiptavini verslananna spurningakönnun. Mælitæki rannsóknarinnar voru ánægjuvog, NPS meðmælaspurning og viðskiptavinagrundað MARKOR mælitæki sem mælir markaðshneigð fyrirtækja. Settar voru fram fjórar tilgátur sem snúa að sambandi markaðshneigðar við ánægju viðskiptavina og líkum þess að viðskiptavinir mæli með versluninni við aðra, sambandi milli ánægju viðskiptavina og líkum þess að þeir mæli með versluninni við aðra og að síðustu milli markaðshneigðar, ánægju og meðmæla við megin ástæðu fyrir vali á verslun. Rannsóknarspurningin sem sett var fram er: Hvaða áhrif hefur markaðshneigð á viðskiptavini matvöruverslana? Helstu niðurstöður eru að magn markaðshneigðar hefur marktæk áhrif á ánægju viðskiptavina sem og líkum þess að viðskiptavinir mæli með versluninni, auk þess sem að ánægja hefur marktæk áhrif á líkur þess að viðskiptavinir mæli með versluninni. Þeir sem velja verslun vegna vöruúrvals eru þá marktækt ánægðari en þeir sem velja verslun vegna verðs eða staðsetningar. Íslenskar matvöruverslanir eru duglegri í að fylgjast með breytingum í samfélaginu og breytingum á starfsháttum samkeppnisaðila en þurfa að leggja aukna áherslu á að rannsaka og þekkja þarfir, óskir og ánægju viðskiptavina sinna betur, ætli þær að auka við markaðshneigð.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Vera Dögg Höskuldsdóttir 1988-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/36477
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/36477

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Vera Dögg Höskuldsdóttir 1988-. Viðskiptavinagrunduð markaðshneigð og ánægja viðskiptavina : hvaða áhrif hefur markaðshneigð á viðskiptavini matvöruverslana?. 2020. http://hdl.handle.net/1946/36477