Abstract
dc:description.abstractÍ þessu verki höfundar til BS ritgerðar var kannað hvort hægt væri út frá markaðslegum og rekstrarlegum forsendum að byggja upp og reka hótel við höfnina á Höfn í Hornafirði. Hótelið mun hafa mikla aðgreiningu frá öðrum hótelum í Sveitarfélaginu Hornafirði þar sem sérstaða þess er svokölluð smáframleiðsla. Litlar einingar fá sinn sess í miðjurými hótelsins þar sem framleiðsla þeirra fer fram. Framleiddar verða afurðir til veitingastaðar hótelsins en einnig fyrir gesti og gangandi, þar sem þeir geta verslað og neytt afurðanna annars staðar. Þema hótelsins verður tengt sjávarútvegi á Hornafirði. Sögu hans verður meðal annars gerð skil í texta og myndum sem aðgengilegt er í sjónvarpi í hverju herbergi hótelsins og í móttöku þess. Gerð var viðskiptaáætlun þar sem viðskiptahugmyndinni er lýst og notuð var SVÓT greining til að greina ytri og innri þætti fyrirtækisins. Einnig var gerð rekstraráætlun til að kanna hvort verkefnið væri arðbært og að lokum var unnið að markaðsáætlun þessa nýja fyrirtækis. Í markaðsáætlun voru söluráðarnir skoðaðir það er verð, dreifing og auglýsingar og kynningarstefna hótelsins. Stuðst var meðal annars við hugtök tengd ferðamennsku eins og markaðs- og samkeppnisgreiningu og samsetningu ferðamanna. Niðurstöður leiddu í ljós að verkefnið sem unnið var á góða framtíðarmöguleika, hvort heldur sem skoðað er út frá markaðslegu- og/eða rekstrarlegu sjónarhorni.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Þórdís Einarsdóttir 1969-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 11Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/32448
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/32448